Uppreisnarsveitir Húta í Jemen segjast hafa gert árás á alþjóðaflugvöllinn í Riyadh, höfuðborg Sádi-Arabíu. Háværar sprengingar hafa kveðið við í borginni í kvöld. Hútar segjast jafnframt hafa lagt til atlögu að hreinsistöð ríkisrekna olíu- og jarðgasfyrirtækisins Aramco og fleiri skotmörkum í landinu.
Átök færast sífellt í aukana. Fjölþjóðaherinn í Jemen, sem er undir stjórn Sáda, segist á sama tíma hafa eyðilagt nokkrar bækistöðvar Húta á strönd Rauða hafsins.
Stjórnvöld í Pakistan og Tyrklandi heita að senda herlið til Sádi-Arabíu samkvæmt ákvæðum nýs, gagnkvæms varnarsamnings ríkjanna. Fjölþjóðaherinn og stjórnarherinn í Jemen hyggjast endurheimta allt það landsvæði sem Hútar hafa sölsað undir sig, sem er ærið verkefni.