Samúel Guðmundsson, sem hefur á skömmum tíma orðið einn þekktasti Íslendingurinn á samfélagsmiðlum eftir samskipti sín við rabbínann Shmuley Boteach og eftirminnilega frammistöðu í þætti Piers Morgan, fer ekki í neinar grafgötur með afstöðu sína til komandi þjóðaratkvæðagreiðslu.
Í Instagram story sem Samúel birti á mánudagskvöld tók hann af allan vafa um hvoru megin hann stendur þegar kemur að fyrirhugaðri atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið.
Fimm sinnum „NEI“
„NEI við miðlægri stjórn í Evrópu,“ skrifar Samúel og heldur áfram:
„NEI við sjálfstæðismissi.
NEI við menningarmissi.
NEI við að missa auðlindir.
NEI við að setja framtíð okkar í hendur annarra landa.“
Síðan lýkur hann skilaboðunum með orðunum:
„Ísland fyrir Íslendinga“

Það verður því seint sagt að Samúel sé óviss með sína afstöðu.
Óvænt internetstjarna
Samúel hefur vakið gríðarlega athygli síðustu vikur eftir opinber orðaskipti sín við Shmuley Boteach. Athyglin jókst enn frekar þegar honum var boðið að mæta rabbínanum í kappræður í Piers Morgan Uncensored.
Frammistaða Samúels þar fékk mikil viðbrögð og hrós frá áhorfendum, bæði hér heima og erlendis.
Almannatengillinn Karen Kjartansdóttir sagði um Samúel að hann væri „einhver óvæntasta stjarna internetsins sem ég man eftir“ og benti á að hinn ungi iðnaðarmaður frá Selfossi hefði skyndilega verið kominn í kappræður í einum stærsta viðtals- og umræðuþætti YouTube eins og ekkert væri sjálfsagðara.
