Öll þáttaröðin er nú þegar komin inn á Sýn+ en í þáttunum opnar Egill tímahylkið og skoðar hvað hefur breyst í íslensku skemmtanalífi, matarmenningu, tísku, útihátíðum og stefnumótamenningu landsins.
Í fyrsta þættinum talar Jakob Frímann á léttu nótunum um bindindishátíðir sem voru margar hverjar ekki miklar bindindishátíðir. Jakob fer einnig vel yfir söguna af því hvernig hin fræga veðurvél kom til sögunnar á sínum tíma.
Sögusagnir segja að sama vél hafi verið notuð í Vaglaskógi fyrir stóru Kaleo-tónleikana fyrir norðan á síðasta ári. Ákveðin flökkusaga um þessa tilteknu vél hefur gengið um en í þættinum talar Jakob um mörg vitni að notkun á vélinni og að Einar Bárðarson hafi verið duglegur að flytja hana inn á sínum tíma.