Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, stendur föst á þeirri skoðun sinni að ríkið eigi að selja Landsbankann og nýta söluandvirðið til að greiða niður ríkisskuldir. Hún telur að þannig megi skapa um tíu milljarða króna fjárhagslegt svigrúm á ári og varar við hugmyndum um að breyta Landsbankanum í samfélagsbanka.Þetta kemur fram í aðsendri grein Ásdísar í Morgunblaðinu í dag þar sem hún gagnrýnir sjónarmið um áframhaldandi ríkiseign á bankanum.
Ásdís gefur ekkert eftir: Samfélagsbanki geti reynst skattgreiðendum dýrkeyptur