Í tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands segir að 4. september 2026 hafi dómsmálaráðuneytið auglýst tvö embætti héraðsdómara laus til umsóknar. Annars vegar sé um að ræða skipun í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur og hins vegar setningu í embætti dómara við sama dómstól til og með 31. ágúst 2028.
Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hafi skilað umsögn sinni til ráðherra. Það sé niðurstaða dómnefndar að Tómas Hrafn Sveinsson sé hæfastur umsækjenda og að Þóra Hallgrímsdóttir standi honum næst að hæfni.
Tómas Hrafn er ekki ókunnugur dómarstörfum en hann er varadómari við Endurupptökudóm.