Bandaríski leikarinn Daniel Roebuck hefur brugðist við ummælum Chris Columbus, leikstjóra einnar vinsælustu jólamyndar allra tíma, Home Alone, um aðdraganda þess að hann var rekinn úr hlutverki annars innbrotsþjófsins í myndinni árið 1990.Flestir kannast við þá Joe Pesci og Daniel Stern í hlutverkum Harry og Marv, ólánssömu innbrotsþjófanna sem áttu í höggi við Kevin McCallister. Færri vita ef til vill að Roebuck hafði verið ráðinn í hlutverk Marv eftir að samningar við Stern um laun hans höfðu strandað.
Ósáttur við ummæli leikstjóra Home Alone 36 árum síðar: „Þetta gerðist aldrei“