Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að bandarískri þjóðernisvitund stafi ógn af róttæklingum og ofstækisfólki. Þetta sagði hann í ræðu sinni í tilefni 250 ára afmælis Bandaríkjanna við Mount Rushmore í Suður-Dakóta í gær.
Ræða hans þótti bera vott um mikla föðurlandsást og hann hrósaði fyrri leiðtogum þjóðarinnar. Hann sagði þó að kommúnismi hefði verið endurvakinn og af honum stafaði mikil ógn. Trump hefur talað á þessum nótum áður en á síðustu vikum hafa nokkrir vinstri sinnaðir demókratar sigrað í forkosningum fyrir þingkosningar í nóvember.
Skrúðgöngu í Washington D.C. aflýst vegna hita
Bandaríkjamenn fagna þjóðhátíðardegi sínum í dag en útlit er fyrir að mikil hitabylgja setji hátíðarhöld úr skorðum víða. Breska ríkisútvarpið segir að skrúðgöngu sem átti að fara fram í Washington D.C. í dag hafi verið aflýst vegna hitabylgjunnar. Til stendur að Bandaríkjaforseti haldi ræðu utandyra í Washington klukkan 4 síðdegis að staðartíma en hann er sagður vilja fara með ræðuna utandyra.
Þá hefur fjölda annarra viðburða einnig verið aflýst vegna hita, meðal annars í New Jersey, Pennsylvaníu, Maryland og allt vestur til Colarado.
Um 165 milljónir Bandaríkjamanna búa á þeim svæðum þar sem mesti hitinn verður, eða á austurströnd Bandaríkjanna og í miðríkjunum.