Dauðsföllum í Frakklandi og Belgíu fjölgaði mikið í hitabylgju á dögunum. Varað er við hita í Portúgal og gróðureldar geisa í Frakklandi.
Í hitabylgju í Frakklandi í lok síðasta mánaðar hækkaði dánartíðni í landinu um 29 prósent. Í vikunni sem bylgjan geisaði létust 2.025 fleiri en í vikunni á undan. Í París og nágrenni voru dauðsföllin 62 prósentum fleiri á þessum tíma. Heilbrigðisráðuneyti landsins telur þetta þó mögulega vera vanmat.
Skráð dauðsföll í Belgíu voru 39 prósentum fleiri en vanalega á tímabilinu 18. til 29. júní. Nærri helmingur þeirra sem létust var 85 ára eða eldri. Fram kemur í yfirlýsingu frá heilbrigðisráðuneyti Belgíu að svo mikil aukning dauðsfalla sé án fordæma í landinu.
Um 3.000 manns hafa verið flutt á brott vegna gróðurelda í suðurhluta Frakklands. Rauðar viðvaranir hafa verið gefnar út vegna hættu á enn meiri útbreiðslu eldanna. Nærri borginni Perpignan slösuðust nokkrir þegar tjaldsvæði brann í gær. Tvö hundruð bústaðir skemmdust.
Mikill hiti hefur verið í Portúgal síðustu daga, sums staðar yfir 40 stig og rauðar viðvaranir í gildi. Þrátt fyrir hitann kom fjöldi fólks saman í Lissabon í gærkvöld og horfði á leik Portúgals gegn Króatíu á heimsmeistaramótinu í fótbolta.