Flestir sem koma til Grindavíkur aka Víkurbraut. Undir húsunum sem hér sjást hægra megin liggur Stamphólsgjá, ein stærsta sprungan undir bænum. Mörg hús við götuna eru því ónýt.
„Það fara öll húsin nema verkalýðshúsið og efsta húsið. Það verður breytt ásýnd hérna en sjónminnið er þannig að maður venst þessu og þetta er hluti af bænum og uppbyggingunni aftur,“ segir Jón Gunnar Margeirsson, framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Jóns og Margeirs.
Við ætlum að vera hérna og halda áfram, þá þurfum við bara að gera þetta, þó að þetta sé sárt,“ bætir hann við.
„Í þessum húsum við Víkurbrautina þar sem sprungan er undir var fólki ekki hleypt inn til að taka búslóðir eða neitt þannig að það er mikið inni í þessum húsum, meira en í öðrum,“ segir Jón Gunnar jafnframt.
Niðurrif ónýtra húsa í Grindavík hófst í vor og á að klárast í haust. Stefnt er að því að rífa á fjórða tug húsa sem eiga það sameiginlegt að liggja á eða við sprungusveima.
„Það er búið að rífa niður 15–18 hús. Og það eru 30–35 í heildina. Þetta er búið að ganga ágætlega, við vorum heppin með veður í vetur,“ segir hann.
Þegar þau hafa verið rifin á að fylla upp í sprungurnar. Við íþróttahúsið og veitingastaðinn Salthúsið er sú vinna hafin.
Í morgun var tilkynnt um ráðningu nýs bæjarstjóra í Grindavík. Pétur G. Markan tekur formlega við starfinu í næstu viku.
„Við erum í kringum eina helstu áskorunina, það er að sprungufylla og byrja að byggja upp þar sem áður stóðu ónýt hús, og gera það hratt og örugglega en fyrst og fremst þurfum við að opna samfélagið fyrir fólkið til þess að koma heim,“ segir Pétur G. Markan, næsti bæjarstjóri Grindavíkur.
Fasteignafélagið Þórkatla, sem keypti húsin af Grindvíkingum, hyggst takmarka tíma þeirra sem leigja húsin í Grindavík við 12 nætur í mánuði frá 1. september.
Félagið segir að fyrirkomulagið eigi eftir að efla öryggi og yfirsýn fyrir rýmingu en margir Grindvíkingar eru ósáttir við þetta.
„Það þarf að auka við þessa daga, það þarf að tryggja leiðina heim fyrir Grindvíkinga, það gerum við m.a. í gegnum Þórkötlu og það má ekkert vera neitt hik á því,“ segir Pétur.
„Þannig að við vonum að Þórkatla fari aðeins að hjálpa okkur, taki þetta 12 nátta gistiákvæði út úr samningnum og leyfi okkur að vera hérna. Hér er hvergi betra að vera,“ segir Jón Gunnar.