Ekki Trump-mál heldur réttlætismál

Geir Ágústsson skrifar:
Hæstiréttur Bandaríkjanna komst að þeirri niðurstöðu í dag að ríkjum væri heimilt að meina trans nemendum að keppa í skólaíþróttaliðum stúlkna.
Gott mál og sjálfsagt og rímar vel við heilbrigða skynsemi. Meira að segja skólabörn vita að þegar það er „strákar á móti stelpum“ þá eru strákarnir sterkari og fljótari, náttúrulega. Meira að segja kvennalandslið í fótbolta tapa fyrir unglingaliðum stráka og þarf þá væntanlega ekki að ræða frekar sanngirnina í því að konur fái að eiga sínar íþróttir í friði, og ekki bara af réttlætisástæðum heldur líka, og kannski fyrst og fremst, af öryggisástæðum.
En þetta er ekki Trump-mál. Það getur vel verið að Trump sé hérna alveg á hárréttri línu og rími við heilbrigða skynsemi en þetta er ekki Trump-mál. Þótt Trump fagni þá er alveg óhætt fyrir aðra að fagna líka, þar á meðal þeim sem hata Trump inn í beinmerg. Það að Trump fagni hérna er ekki vísbending um að málstaðurinn sé vondur. Hann er góður, óháð því hvað Trump finnst.
Eða svo gripið sé í þreyttan samanburð: Hitler var mikill dýraverndunarsinni og grænmetisæta að auki. Þar með er ekki sagt að dýravinir og grænmetisætur séu þjóðernissósíalistar (nasistar) með andúð á Gyðingum og vilji þurrka út milljónir manna.
Og þótt Trump vilji forða konum frá því að vera tæklaðar í tætlur í rugby af karlmönnum þá er ekki þar með sagt að þeir sem styðja slíkt mál vilji endalaus stríð í Miðausturlöndum.
Trump er eins og hann er. Látum það ekki rugla okkur í ríminu. Í sumum málum má alveg deila skoðunum með honum. Og hafna öðrum. Svona eins og með Viðreisn á Íslandi.