Donald Trump Bandaríkjaforseti hagnaðist um rúman einn milljarð dollara á rafmyntaviðskiptum á síðasta ári samkvæmt fjárhagsuppgjöri sem birt var í gær. US Office of Government Ethics, sjálfstæð stofnun sem hefur eftirlit með og á að koma í veg fyrir og leysa hagsmunaárekstra ríkisstarfsmanna, birti í gær rúmlega 900 síðna skjal þar sem þessar upplýsingar koma fram.
Þennan mikla hagnað Trumps má að miklu leyti rekja til fyrirtækisins World Liberty Financial, sem Trump stofnaði árið 2024 skömmu áður en hann var settur í embætti forseta í annað sinn.
Rafmyntarfyrirtækið stofnaði hann í félagi við syni sína og son Steve Witkoff sem hefur verið í hlutverki sérlegs erindreka Bandaríkjanna í samningaviðræðum við Írana. Alls hagnaðist Bandaríkjaforseti um 550 milljónir dollara vegna tengsla sinna við fyrirtækið.
Hagnast vel á sölu biblía og varnings merktum sér
Þá hefur forsetinn hagnast ríflega á alls kyns varningi sem hann hefur selt, sem er merktur honum, allt frá límmiðum til fatnaðar og alls konar varnings. Í samstarfi við kántrísöngvarann Lee Greenwood hefur hann selt biblíur fyrir 208 milljónir dollara.
Forsetinn hefur reglulega verið sakaður um hagsmunaárekstra, til dæmis fyrir að fjárfesta sjálfur í rafmyntaiðnaðinum á sama tíma og hann aflétti ýmsum reglugerðum varðandi rafmyntir sem Bandaríkjaforseti. Þessar breytingar á reglugerðum urðu til þess að eignaverð hækkaði.
Hvíta húsið segir í tilkynningu sem send var AFP fréttaveitunni að Trump eða fjölskylda hans hafi ekki tekið þátt í eða eigi ekki eftir að taka þátt í neinu sem veldur hagsmunaárekstrum.