Í Viðreisn, líkt og öðrum stjórnmálaflokkum, er margt gott fólk. Þessu verður ekki neitað. En Viðreisn er samt á köflum ákaflega þreytandi fyrirbæri. Ekki vegna þess að Viðreisn telji að sín stefna sé best, öðrum flokkum finnst líka að sín stefna sé best. Og stundum er stefna Viðreisnar kannski best, flokkurinn má eiga það. Vandamálið er annað. Viðreisn finnst að þau séu betra fólk en annað fólk, flokkurinn setur sig á háan hest, gefur í skyn siðferðilega yfirburði, predikar og segir fólki til.
Birgir Hermannsson skrifar: Frjálslyndi böðullinn