Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi nýverið konu á þrítugsaldri í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og til greiðslu tæpra 1,2 milljóna króna auk vaxta fyrir misnotkun á debetkorti vistmanns á hjúkrunar- og dvalarheimili á Vestfjörðum.
Vistmaðurinn er með vitræna skerðingu og vangetu til að átta sig á fjármálum. Konan notaði kort hans alls 48 sinnum og tók rúmlega 1,2 milljónir króna af korti mannsins. Úttektirnar voru bæði hérlendis og erlendis.
Við ákvörðun refsingar var tekið tillit til skýlausrar játningar konunnar fyrir dómi og hún viðurkenndi sömuleiðis bótaskyldu. Með tilliti til þess var konan var dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og fellur refsingin niður haldi konan almennt skilorð í tvö ár. Þá var hún einnig dæmd til að greiða þóknun skipaðs verjanda síns, Vilhjálms H. Vilhjálmssonar lögmanns, kr. 248.000.