Stjórnvöld í Mexíkó hafa sent fimm hundruð manna herlið að landamærunum að Texas í Bandaríkjunum.
Það var ákveðið eftir að sendiherra Bandaríkjanna í Mexíkó sagði að skotum hefði verið hleypt af frá ríkinu Tamaulipas í átt að bandarískum strandgæsluliðum.
Þrátt fyrir að Bandaríkin hafi ekki fært sönnur fyrir skothríðinni tilkynnti Claudia Sheinbaum forseti að senda hermenn að landamærum ríkjanna. Tvö glæpagengi hafa lengi barist um yfirráð í Tamaulipas og Donald Trump Bandaríkjaforseti bætti þeim báðum á lista yfir hryðjuverkasamtök í janúar á síðasta ári.