Parti Québécois, flokkur aðskilnaðarsinna, sigraði í kosningum í Quebec í gær og lofaði að efna til atkvæðagreiðslu um aðskilnað fylkisins frá Kanada. Það yrði þó ekki fyrr en eftir að Donald Trump lætur af embætti Bandaríkjaforseta.
Niðurstaðan þykir prófsteinn á boðskap forsætisráðherrans Marks Carney um þjóðareiningu Kanadamanna. Flokkurinn náði þó ekki hreinum meirihluta í þessum frönskumælandi hluta Kanada sem veitir sambandssinnum nokkra huggun að sögn greinenda.
Leiðtoginn Paul St. Pierre Plamondon, vinsæll 49 ára lögfræðingur, verður samt næsti forsætisráðherra fylkisins. Flokkurinn fagnaði sigrinum hástöfum í Montreal og þá sagði Plamondon að frönskumælandi íbúar eignuðust senn sitt eigið ríki eftir langa togstreitu við ráðandi enskumælandi öfl.
„Við eigum það skilið,“ sagði Plamondon og bætti við að með þjóðaratkvæðagreiðslu yrði framtíðin ráðin. Carney árnaði flokknum heilla og sagði sterkara Quebec lykilinn að öflugu Kanada.
Árangur flokksins veldur nokkru uppnámi innan kanadískra stjórnmála í skugga tollastríðs við Bandaríkin og hótana forsetans um innlimun. Aðeins hálfur mánuður er uns íbúar olíuvinnslufylkisins Alberta ganga til atkvæða um hvort segja eigi skilið við Kanada. Fylkið er einn af máttarstólpum kanadísks efnahags.