Rándýrin rata til Finnlands
Hreindýrabændur í Finnlandi lýsa veruleika sínum við að reka norðurslóðabúskap, þegar reglugerðir Evrópusambandsins gerir þeim erfitt fyrir að ná stjórn á rándýrunum sem ráðast á dýrin. Þrátt fyrir ríkisstyrki reynist reksturinn þungur en ferðaþjónustan vegur upp á móti.
„Fjölskyldan mín hefur verið á svæðinu í meira en 400 ár,“ segir Juha Kujala, hreindýrahirðir í Lapplandi. Hann hefur helgað líf sitt því að viðhalda aldagamalli lífsafkomu, en hver er reynsla Finna af búskap á norðurslóðum innan Evrópusambandsins?
Þeir Juha og Ari Maununiem lýsa tækifærum og áskorunum við að viðhalda landbúnaði á einu nyrsta svæði Evrópu.
Juha er fimmta kynslóð hreindýrahirða og ólst upp við hefðir og venjur hreindýrabúskapar sem hann lærði áður en hann tók við rekstrinum af föður sínum. Sjálfur lýsir hann sér sem hreindýrahirði frá blautu barnsbeini.
Hann býr með eiginkonu sinni, Jenni, og saman ala þau upp fjóra syni. Því vonast hann til þess að hirðishefð fjölskyldunnar haldi áfram með næstu kynslóð. Jenni gegnir einnig mikilvægu hlutverki í fjölskyldufyrirtækinu. „Konan mín er listamaður. Hún býr til list, teiknar og gerir málverk, en býr líka til handverk úr hreindýrahornum og gæru.“