Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu hófst í gær og heldur áfram í dag. Strax í gær varð ljóst að meðal mikilvægustu sönnunargagna í málinu eru upptökur úr síma meints höfuðpaurs, Andra Más Mortensen Birgissonar, en um er að ræða upptökur úr símtölum milli Andra, annarra sakborninga og ótengdra aðila.Eins og greint var frá í gær þykja upptökurnar nokkuð sláandi og ekki á hverjum degi sem hlusta má á nánast beina útsendingu frá undirbúningi, framkvæmd og eftirmála meintra glæpa.
Höfuðpaurinn í Reykholtsmálinu tók gleði sína á ný eftir mikið uppnám - „Núna er maðurinn þinn kominn með úrsala“