Wes Streeting hefur ákveðið að segja af sér sem heilbrigðisráðherra Bretlands. Þetta gæti merkt að hann freisti þess að verða næsti forsætisráðherra Bretlands.
Streeting birti bréf til Starmers á samfélagsmiðlinum X þar sem hann sagðist hafa misst trúna á forystu Starmers og því gæti hann ekki með góðri samvisku verið áfram í embætti heilbrigðisráðherra.
Hann vísaði til nýliðinna sveitarstjórnarkosninga þar sem Verkamannaflokkur Starmers galt afhroð víða í Bretlandi, jafnvel á stöðum þar sem hann hefur átt sterkar rætur áratugum saman.
„Niðurstöður kosninganna voru fordæmalausar – bæði í umfangi og afleiðingum. Í fyrsta sinn í sögu lands okkar eru þjóðernissinnar við völd í hverju horni Bretlands,“ sagði í bréfi Streetings.
„Það er ljóst að þú munt ekki leiða Verkamannaflokkinn inn í næstu þingkosningar.“
Breskir fjölmiðlar greindu frá því í gær að Streeting væri að undirbúa afsögn sína. Hann ætli að reyna að fá stuðning þess fjölda þingmanna sem þarf, 81, til að skora Starmer á hólm í leiðtogakjöri.
Forsætisráðuneytið sendi frá sér tilkynningu í gær um að Starmer bæri fullt traust til Streetings.
Fjórir undirráðherrar sögðu af sér í gær og yfir 80 þingmenn hvöttu Starmer til að segja af sér. Þá voru um 100 þingmenn sem sendu frá sér yfirlýsingu honum til stuðnings.
Fréttin hefur verið uppfærð.