Hér að neðan geta lesendur skoðað mögulega meirihluta og líkurnar á hverjum og einum.
Sem stendur eru til dæmis 17 prósent líkur á að Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn og Framsóknarflokkurinn geti myndað meirihluta til hægri. Á móti eru 36 prósent líkur á að Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Framsókn geti myndað meirihluta.
Ef litið er yfir á vinstri vænginn eru 26 prósent líkur á að Samfylkingin geti myndað þriggja flokka meirihluta með Viðreisn og Vinstrinu. Píratar og Sósíalistar gætu bæst í hópinn og þá nálgast líkurnar 50 prósent.
Góðar líkur, eða 77 prósent, eru á því að Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin gætu myndað meirihluta en miðað við kappræður gærkvöldsins má telja ólíklegt að sú yrði niðurstaðan.
Töluverðar umræður sköpuðust um mögulega meirihluta í kappræðum Sýnar í gærkvöldi. Þar voru oddvitarnir látnir taka afstöðu til þess hvort þeir útilokuðu samstarf við einhverja flokka.
Kappræðurnar í heild sinni má svo sjá hér að neðan.