Margrét Þórhildur Danadrottning hefur verið lögð inn á sjúkrahús vegna hjartavandamála. Frá þessu greinir danska ríkisútvarpið. Þar segir að hún hafi verið lögð inn með svokallaða hjartaöng, eða angina pectoris, sem getur verið einkenni blóðþurrðar í hjartavöðva.
Í tilkynningu frá konungshöllinni segir að hún sé þreytt en líðan hennar góð eftir atvikum. Hún verði á sjúkrahúsi yfir helgina svo unnt sé að fylgjast með líðan hennar.
Margrét Þórhildur varð 86 ára 16. apríl. Hún hefur verið lögð nokkrum sinnum inn á sjúkrahús síðustu ár, til að mynda fyrir um ári síðan vegna flensu. Þá var hún útskrifuð nokkrum dögum síðar.
Árið 2024 fór hún í langt veikindaleyfi til að jafna sig eftir fall og árið áður undirgekkst hún aðgerð á baki.
Margrét varð drottning Danmerkur 14. janúar 1972 og tilkynnti á gamlárskvöld 2023 að hún ætlaði að stíga til hliðar. Friðrik sonur hennar varð Danakonungur 14. janúar 2024 og varði valdatíð Margrétar því 52 ár upp á dag.