Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gæslunni sem hyggst ekki greina frá líðan skipverja eða veita frekari upplýsingar að svo stöddu.
Tilkynnt var um að fiskiskipið hefði sokkið á sjötta tímanum síðdegis í dag. Sautján voru um borð í skipinu þegar það sökk, samkvæmt heimildum fréttastofu. Skipið heitir Jökull ÞH 299.
Fylgjast má með nýjustu vendingum í málinu í sérstakri fréttavakt á Vísi.