Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sendir skipverjum fiskiskipsins Jökuls, ástvinum þeirra og björgunarfólki hlýjar kveðjur í færslu á samfélagsmiðlum í kvöld.Eins og greint hefur verið frá sökk Jökull austur af landinu í dag en sautján skipverjar voru um borð. Umfangsmiklar björgunaraðgerðir standa yfir við afar erfiðar aðstæður á hafi úti.„Hugur minn er hjá sjómönnunum fyrir austan, ástvinum þeirra og öllu því góða og hugrakka fólki sem vinnur nú að björgun þeirra. Á slíkum stundum slær hjarta þjóðarinnar í sama takti,“ segir forsetinn og bætir við:
Halla Tómasdóttir: „Megi allir komast heilir heim“