Umfangsmikil tölvuárás á upplýsingainnviði – Viðbragðsáætlun almannavarna virkjuð

Umfangsmikil tölvuárás á upplýsingainnviði – Viðbragðsáætlun almannavarna virkjuð

Umfangsmikil tölvuárás á upplýsingainnviði – Viðbragðsáætlun almannavarna virkjuð

Garðar Stefánsson, forstjóri Rapyd Europe, segir fyrirtækið hvorki hafa orðið vart við tölvuárás á kerfi sín né vísbendingar um mögulega árás í dag. Félag eins og Rapyd verði hins vegar mjög oft fyrir slíku.

„Rapyd Europe hf hefur varið miklum fjármunum í að halda öryggi og mun gera það áfram. En við erum aldrei undanskilin frá netárásum frekar en önnur félög. Við verðum áfram vakandi og varin fyrir slíkum árásum nú sem áður,“ segir Garðar í svari við fyrirspurn fréttastofu.

Kristinn Örn Agnarsson, forstjóri Teya á Íslandi, segir fyrirtækið ekki hafa orðið fyrir tölvuárás í dag.

„Ég er búinn að fara yfir öll okkar kerfi og Teya á Íslandi hefur ekki orðið fyrir tölvuárásum í dag. Þetta er staðfest þegar þetta er ritað,“ segir Kristinn Örn í svari við fyrirspurn fréttastofu.

Netöryggissveitin CERT-IS varaði við auknum netógnum fyrr í dag vegna sjálfvirkra árása með gervigreind.

„Sjálfvirkni og gervigreind eru að breyta umfangi, hraða og framkvæmd netárása. Opinn hugbúnaður og kerfi sem nýta gervigreind til innbrotsprófana og skönnunar á veikleikum hafa verið misnotuð af árásaraðilum. Þessi þróun þýðir að aðferðir og tækni sem áður kröfðust sérhæfðra aðila er orðin aðgengilegri og auðveldari í notkun,“ segir á vef CERT-IS.

„CERT-IS hvetur því íslensk fyrirtæki og stofnanir til að yfirfara aðgangsstýringar, kerfi opin út á internetið, skýjaþjónustur og tengingar við þriðju aðila og tryggja að vöktun og viðbragðsgeta sé í samræmi við þessa þróun.“

Þar segir að áhættan fyrir íslensk fyrirtæki sé sjálfvirk leit að veikleikum, misnotkun aðgangsupplýsinga, árasir í gegnum birgja, gagnaþjófnaður og hraðara árásarferli.

CERT-IS hvetur íslensk fyrirtæki og stofnanir til að fara yfir aðgangsstýringar og auðkenningar, kerfi sem eru aðgengileg frá veraldarvefnum, skýjaþjónustur og birgja og vöktun og viðbragðsgetu.

„Ef grunur vaknar um að upplýsingakerfi hafi verið nýtt í óheimilum tilgangi er mikilvægt að virkja viðeigandi viðbragðsáætlun, tryggja varðveislu sönnunargagna og tilkynna atvik til cert@cert.is eða í gegnum hnapp á cert.is.“

Seðlabanki Íslands hefur síðustu misseri unnið að því að efla viðnámsþrótt fjármálakerfisins á Íslandi vegna aukinnar hættu á netárásum.

„Við þurfum að horfast í augu við það að heimsmyndin er gjörbreytt og við reiðum okkur mjög mikið á alls konar tæknilausnir sem geta að sjálfsögðu annað hvort bilað eða orðið fyrir netárásum,“ sagði Tómas Brynjólfsson varaseðlabankastjóri í viðtali í sumar.

„Í dag reiðum við okkur á tvö erlend kortafyrirtæki fyrir eiginlega allar greiðslur fyrir vörur og þjónustu. Við viljum gera það mögulegt að fólk geti greitt með millifærslum í búðum. Og hins vegar erum við að auka eftirlit okkar og eftirfylgni með alls konar tækniaðilum sem eru að vinna á þessu sviði.“

Magni Reynir Sigurðsson, forstjóri CERT-IS, segir ekki liggja fyrir að svo stöddu hvort tölvuárásin hafi beinst að veikleika í API-hugbúnaði Azure-þjónustu Microsoft.

„Það er ekki komið í ljós. Við erum að fara að taka fund fljótlega,“ segir Magni Reynir. „Það er eitt af mörgu sem er verið að greina.“

Hann staðfestir að það sé til skoðunar hvort tölvuárásin hafi beinst að greiðslumiðlun hérlendis.

„Við erum í þéttu samráði beint við okkar þjónustuhópa eins og staðan er núna, að miðla upplýsingum til þeirra en erum fyrst og fremst að vinna í atvikinu sjálfu og þeim tilkynningum sem eru að berast til okkar.“

Hann segir að upplýsingar séu að berast frá þjónustuþegum CERT-IS um hvort þeir hafi orðið varir við „ógnarvísa“ í sínum kerfum, það er IP-tölur og annað sem CERT-IS deilir með þjónustuþegum sem mögulegt sé að ógnaraðilar noti til innbrota.

CERT-IS vinni að því að kanna landslagið og kortleggja hvaða snertingar hafi átt sér stað.

Fjarskiptastofa býður öllum fyrirtækjum og stofnunum upp á stöðumat netöryggis vilji þau fá betri yfirsýn yfir stöðu sína og greina leiðir til úrbóta. Matið byggi á spurningum og matsviðmiðum um skipulag, stjórnun og öryggisráðstafanir.

Stöðumat netöryggis er ekki hluti af lögbundnu eftirliti Fjarskiptastofu, heldur er því ætlað að styðja fyrirtæki og stofnanir við að meta eigin netöryggisstöðu og greina tækifæri til umbóta.

Bláa lónið er meðal þeirra fyrirtækja sem urðu fyrir netárás í dag. Þetta staðfestir Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri fyrirtækisins.

Hún segir árás hafa verið gerða á bókunarsíður lónsins. Bláa lónið hafi brugðist hratt og rétt við og tilkynnt til viðeigandi eftirlitsaðila. Hún segist ekki geta svarað því hvort það hafi verið í gegnum Microsoft Azure af öryggisástæðum. Fáum gögnum hafi verið stolið.

Hún segir árásina ekki hafa haft veruleg áhrif á rekstur en hafi snert einhverja viðskiptavini. Bláa lónið hafi látið þá vita. Árásaraðilarnir hafi ekki komist yfir persónugögn.

Microsoft gaf út öryggisuppfærslu á Azure 19. nóvember í kjölfar tölvuárása á norskt orkufyrirtæki. Greint var frá þessu í dag á fjölmiðlinum Cyber Security Dive sem fjallar um stafræn öryggismál.

Þar segir að árásum á Skagerak Energi hafi verið beint að veikleika í API-þjónustu Azure. API er, í einföldu máli, hugbúnaður sem er notaður til að gera samskipti á milli ólíks hugbúnaðar möguleg, til dæmis hvað varðar að skiptast á gögnum eða aðgerðum.

Microsoft gaf út öryggisuppfærslu sem á að hafa lagfært veikleikann. Öryggisráð Noregs sagði tölvuþrjót meðal annars hafa verið á höttunum eftir trúnaðargögnum og aðgangsheimildum í API-þjónustu Azure. Ekkert gefur til kynna að gögnum hafi verið stolið í árásinni á Skagerak.

Yfirvöld í Noregi hafa beðið fyrirtæki um að gera öryggisráðstafanir vegna árásarinnar.

Microsoft Azure var notað í tölvuárásinni á Reykjavíkurborg. Azure er skýjaþjónusta Microsoft, sem býður meðal annars upp á gervigreindarlausnir.

„Microsoft Azure notar marglaga öryggisvarnir fyrir gagnaver, innviði og annan rekstur. Í Azure eru einnig sérstakar varnir gegn DDoS-árásum og öðrum öryggishættum í netlaginu, til að stuðla að öryggi gagna,“ segir um þjónustuna á vef Advania.

Lykilatriði er að gæta varkárni gagnvart gervigreind og sleppa allri fífldirfsku segir Logi Már Einarsson háskóla-, menningar- og nýsköpunarráðherra.

Hann segir viðvörunarljós blikka um allt vegna tækninnar sem þróast á ógnarhraða. Brýnt sé að ríki heims komi sér saman um leikreglur.

Gervigreind hefur þróast á ógnarhraða. Logi segir að nýta eigi hana til góðs en vera á varðbergi gagnvart hagsmunum á borð við persónuvernd og lýðræði. Kollegar hans ræði iðulega um gervigreind og viðbrögð við henni á fundum erlendis.

Runólfur segir að ekki sé talin ástæða til þess að óttast um öryggi almennings á þessu stigi.

„En ef einhverjar slíkar vísbendingar berast okkur eða tilkynningar þá munum við tilkynna það alveg um leið.“

„Við teljum mjög mikilvægt að öll þau sem eru að vinna við þessi mikilvægu upplýsingakerfi okkar, sama í hvaða stofnunum það er, að þau séu meðvituð um það að það er verið að nota þetta gervigreindartól í netárásum af sífellt meiri þunga,“ segir Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarna.

Runólfur segir óvissustig hafa verið virkjað. Viðbragðsáætlunin snúi að ómissandi upplýsingainnviðum.

Tilkynningar um netárásir hafa borist frá fleirum en Reykjavíkurborg í dag. Runólfur Þórhallsson sviðstjóri almannavarnadeildar segir ákvörðun hafa verið tekna um að virkja óvissustig í kjölfar þess.

Boðað hefur verið til fundar fulltrúa Reykjavíkurborgar og netöryggissveitarinnar CERT-IS klukkan hálf ellefu í kvöld vegna netárásar sem gerð var á hluta tölvukerfa borgarinnar fyrr í dag.

Gera má ráð fyrir röskun á rafrænni þjónustu borgarinnar næstu daga eftir árásina. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að gripið hafi verið til öryggisráðstafana til að vernda kerfi og gögn umsvifalaust eftir að árásarinnar varð vart.

Ákveðið var að taka fjölda rafrænna þjónustukerfa tímabundið úr sambandi. Sum þjónustukerfi kunna að verða óaðgengileg að hluta eða öllu leyti meðan sérfræðingar netöryggisfyrirtækisins Syndis og CERT-IS tryggja öryggi þeirra og virkni.

Reykjavíkurborg varð í dag fyrir netárás á hluta tölvukerfa sinna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni. Fjöldi rafrænna þjónustukerfa hefur verið tekinn úr sambandi tímabundið.

Samkvæmt heimildum fréttastofu var brotist inn í gegnum Microsoft Azure. Netárásaraðilar hafi komist yfir einhver lykilorð og hafi komist inn í gagnagrunn. Leiða megi líkur að því að talsvert af gögnum sé undir.

Komist hafi upp um árásina í hádeginu en ekki liggi fyrir hve lengi árásaraðilarnir hafi náð að athafna sig. Grunur leiki á að árásin komi að utan en ekki í gegnum íslenska netþjóna.

Mörður Áslaugarson, framkvæmdastjóri 1984, segir mjög líklegt að þjóðríki hafi gert netárásina á fyrirtækið í síðustu viku mjög líklega þjóðríki. Það sé mat sérfræðinga fremur en að smærri hópar hafi verið á ferð. Atlagan hafi verið viðamikil, dýr, langvarandi og háþróuð.

Atlagan hafi verið óvenjuleg fyrir margar sakir. Hún sé markviss og hægt sé að draga ýmsar ályktanir út frá hegðun þrjótanna í aðdraganda og kjölfar hennar. Þögn þeirra eftir á gefi vísbendingar enda stæri hakkarar sig oft af árásum sínum á svokölluðum hulduvef en í þessu tilfelli hafi ekki heyrst múkk frá árásarmönnunum.

Tölvuþrjótar nota opin gervigreindartól til að ráðast á íslenska upplýsingainnviði. . Samkvæmt heimildum RÚV eru nokkrar gervigreindarárásir í gangi þessa stundina á nokkur fyrirtæki og þjónustur á Íslandi. Við ræddum við Magna Sigurðsson, forstöðumann netöryggissveitar CERT-IS.

Almannavarnir hvetja fyrirtæki og stofnanir til að yfirfara eigin varnir og hættumat og yfirfara aðgangsstýringar og þau kerfi sem opin eru út á internetið, skýjaþjónustu og tengingar við þriðja aðila.

„Auk þess er mikilvægt að tryggja að vöktun og viðbragðsgeta séu í samræmi við þessa þróun. Mikilvægt er að aðilar tilkynni grun um atvik í eigin kerfum til CERT-IS, cert@cert.is eða í gegnum hnapp á cert.is.“

Viðbragðsáætlun Almannavarna ríkislögreglustjóra og CERT-IS hefur verið virkjuð um verndun ómissandi upplýsingainnviða.

Áætlunin er virkjuð á óvissustigi almannavarna. Í tilkynningu segir að ákvörðunin hafi verið tekin vegna aukinnar notkunar gervigreindar í netárásum gagnvart innviðum og upplýsingakerfum.

Í þessu felst að vöktun og samráð verði aukið milli Almannavarna, CERT-IS og þeirra sem reka ómissandi upplýsingainnviði. Í dag var gerð árás á hluta tölvukerfa Reykjavíkur og tíðindi hafa borist af fleiri árásum af sama tagi.

Velkomin í þessa fréttavakt þar sem við á fréttastofunni fylgjumst með framvindu mála.

#almannavarna #tölvuárás #umfangsmikil #upplýsingainnviði #viðbragðsáætlun


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-11-25-umfangsmikil-tolvuaras-a-upplysingainnvidi-vidbragdsaaetlun-almannavarna-virkjud-493798

📰 Aðrar fréttir

Watch: BBC confronts German man suspected of supplying migrant gangs with small boats
📅 26.11.2026 👁️ 1
Watch: BBC confronts German man suspected of supplying migrant gangs with small boats
Nearly a third of crossings in early 2026 allegedly involved boats or engines from Marvin Reuter's firm.
German boat dealer suspected of supplying Channel smuggling gangs, BBC finds
📅 26.11.2026 👁️ 1
German boat dealer suspected of supplying Channel smuggling gangs, BBC finds
Nearly a third of crossings in early 2026 allegedly involved boats or engines from the German man's firm.
31 látinn eftir að eldur kviknaði í olíuflutningabíl
📅 26.11.2026 👁️ 1
31 látinn eftir að eldur kviknaði í olíuflutningabíl
Þrjátíu og einn létust í eldsvoða í Kaíró, höfuðborg Egyptalands, í dag. Olíuflutningabíll valt á fjölfarinni umferðargötu í Al-Warrack-hverfinu í Giz...
Gítarleikari Duran Duran látinn
📅 26.11.2026 👁️ 2
Gítarleikari Duran Duran látinn
Andy Taylor, gítarleikari hljómsveitarinnar Duran Duran, er látinn, 65 ára að aldri. Taylor greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli árið 2018. Han...
UK government set to publish new treaties agreed with EU
📅 26.11.2026 👁️ 3
UK government set to publish new treaties agreed with EU
The BBC understands the treaties contain a 10-year termination clause to reimburse costs of any need to rebuild border checks infrastructure.
Þjóðin hafi beðið á milli vonar og ótta - Vísir
📅 26.11.2026 👁️ 4
Þjóðin hafi beðið á milli vonar og ótta - Vísir
Í kjölfarið tók við umfangsmikil aðgerð þar sem öllum sautján áhafnarmeðlimum skipsins sem sökk skömmu eftir útkallið var komið um borð í þyrluna TF-G...
BBC launches partnership with Met Office for weather coverage
📅 26.11.2026 👁️ 4
BBC launches partnership with Met Office for weather coverage
The corporation says the deal will deliver more regional, digital and 10-day forecasts to audiences.
Expect fewer frosts and more hot days as UK seasons shift, says Met Office
📅 26.11.2026 👁️ 3
Expect fewer frosts and more hot days as UK seasons shift, says Met Office
Changing seasons are affecting wildlife and leading some farmers to grow different crops.
US approves SpaceX plan to send a million data satellites to space
📅 26.11.2026 👁️ 4
US approves SpaceX plan to send a million data satellites to space
The Starmind constellation aims to be the most cost and energy-efficient way to meet the growing demand for AI computing power.
Aðgerðum Landhelgisgæslunnar er lokið og áhöfnin flutt í Egilsstaði
📅 26.11.2026 👁️ 3
Aðgerðum Landhelgisgæslunnar er lokið og áhöfnin flutt í Egilsstaði
Aðgerðum Landhelgisgæslunnar um sextíu sjómílur austur af landinu þar sem íslenska fiskiskipið Jökull ÞH 299 sökk er lokið. Misvísandi upplýsingar bár...
Aðgerðum Landhelgisgæslunnar er lokið og áhöfnin flutt til Egilsstaða
📅 26.11.2026 👁️ 2
Aðgerðum Landhelgisgæslunnar er lokið og áhöfnin flutt til Egilsstaða
Aðgerðum Landhelgisgæslunnar um sextíu sjómílur austur af landinu þar sem íslenska fiskiskipið Jökull ÞH 299 sökk er lokið. Misvísandi upplýsingar bár...
Stalking law simplified to become one offence
📅 26.11.2026 👁️ 5
Stalking law simplified to become one offence
The new stalking offence will be introduced after a review found existing legislation was confusing.
Fiskiskipið Jökull sökk austur af landinu - Björgunaraðgerðum á sjó lokið - Allir komnir um borð í þyrluna
📅 26.11.2026 👁️ 4
Fiskiskipið Jökull sökk austur af landinu - Björgunaraðgerðum á sjó lokið - Allir komnir um borð í þyrluna
Fiskiskipið sem er í vanda statt austur af landinu heitir Jökull og hefur skráningarnúmerið ÞH299 en 17 manns voru um borð. Aðstæður á staðnum eru afa...
Aukafréttatími á miðnætti vegna skipsskaða
📅 25.11.2026 👁️ 7
Aukafréttatími á miðnætti vegna skipsskaða
Aukafréttatími verður í sjónvarpi á miðnætti vegna björgunaraðgerða undan austanverðu landinu. Honum verður líka útvarpað á samtengdum rásum.Skipið Jö...
Að­gerðum lokið og skip­verjar fluttir til Egils­staða - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 6
Að­gerðum lokið og skip­verjar fluttir til Egils­staða - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gæslunni sem hyggst ekki greina frá líðan skipverja eða veita frekari upplýsingar að svo stöddu. Tilkynnt var um að...
„Megi allir komast heilir heim“ - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 6
„Megi allir komast heilir heim“ - Vísir
Skrifaði hún þessi orð í færslu á Facebook-reikningi sínum ásamt því að skrifa að á „slíkum stundum slær hjarta þjóðarinnar í sama takti“. Þegar hafa ...
Halla Tómasdóttir: „Megi allir komast heilir heim“
📅 25.11.2026 👁️ 5
Halla Tómasdóttir: „Megi allir komast heilir heim“
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sendir skipverjum fiskiskipsins Jökuls, ástvinum þeirra og björgunarfólki hlýjar kveðjur í færslu á samfélagsmiðlu...
Andy Taylor er látinn
📅 25.11.2026 👁️ 5
Andy Taylor er látinn
Andy Taylor, gítarleikari ensku sveitanna Duran Duran og Power Station, er látinn, 65 ára að aldri. Hann lést af völdum blöðruhálskrabbameins síðastli...
Gítar­leikari Duran Duran látinn - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 5
Gítar­leikari Duran Duran látinn - Vísir
Í tilkynningu frá eiginkonu hans Tracey segir að hann hafi verið stórkostlegur gítarleikari, yndislegur eiginmaður og faðir og stoltur afi. Taylor gek...
Fiskiskipið Jökull sökk austur af landinu - Skipverjar í sjónum - Björgunaraðgerðir standa yfir
📅 25.11.2026 👁️ 5
Fiskiskipið Jökull sökk austur af landinu - Skipverjar í sjónum - Björgunaraðgerðir standa yfir
Fiskiskipið sem er í vanda statt austur af landinu heitir Jökull og hefur skráningarnúmerið ÞH299 en 17 manns voru um borð. Aðstæður á staðnum eru afa...
Landsnet fjárfestir í orkuvinnslu og orkunýtingu
📅 25.11.2026 👁️ 5
Landsnet fjárfestir í orkuvinnslu og orkunýtingu
Landsnet annast og ber ábyrgð á meginflutningskerfi raforku hér á landi.Samkvæmt orkuspá mun eftirspurn eftir orku halda áfram að aukast næstu árin og...
Duran Duran guitarist Andy Taylor dies, aged 65
📅 25.11.2026 👁️ 5
Duran Duran guitarist Andy Taylor dies, aged 65
The musician, who co-wrote some of the band's biggest hits, had been treated for prostate cancer.
Fengu upp­lýsingar um að á­höfnin væri að yfir­gefa skipið - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 6
Fengu upp­lýsingar um að á­höfnin væri að yfir­gefa skipið - Vísir
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út ásamt áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF og sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Aust...
At least 30 killed in massive fire as fuel tanker crashes on Cairo highway
📅 25.11.2026 👁️ 2
At least 30 killed in massive fire as fuel tanker crashes on Cairo highway
Another 19 are injured after the tanker reportedly overturns on a busy ring road in the Egyptian capital.
Thirty-one killed in massive fire as fuel tanker crashes on Cairo highway
📅 25.11.2026 👁️ 4
Thirty-one killed in massive fire as fuel tanker crashes on Cairo highway
Another 21 are injured after the tanker reportedly overturns on a busy ring road in the Egyptian capital.
„Myndi sofa betur vitandi að þeir geti ekki skaðað neinn annan“ - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 5
„Myndi sofa betur vitandi að þeir geti ekki skaðað neinn annan“ - Vísir
Það var hinn bandaríski Carey Washington Vinson sem lést en faðir hans er stjórnmálamaðurinn Joe Winson. Hann hefur nú birt tvær færslur varðandi andl...
Fiskiskip í vanda austur af landinu - Sautján manns um borð og fjöldi skipa á leið á staðinn
📅 25.11.2026 👁️ 5
Fiskiskip í vanda austur af landinu - Sautján manns um borð og fjöldi skipa á leið á staðinn
Fiskiskip er í vanda statt austur af landinu og björgunaraðilar eru á leið á staðinn en litlar upplýsingar liggja fyrir um stöðuna en skipverjar eru þ...
Bláa lónið meðal þeirra sem urðu fyrir netárás
📅 25.11.2026 👁️ 4
Bláa lónið meðal þeirra sem urðu fyrir netárás
Bláa lónið er meðal þeirra fyrirtækja sem urðu fyrir netárás í dag. Þetta staðfestir Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri fyrirtækisins.Hún segir árá...
Ekki ástæða til þess að óttast um öryggi almennings á þessu stigi
📅 25.11.2026 👁️ 4
Ekki ástæða til þess að óttast um öryggi almennings á þessu stigi
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og CERT-IS hafa ákveðið að virkja viðbragðsáætlun almannavarna vegna fjölgunar gervigreindarárása á tölvukerfi.R...
Sautján skipverjar í háska austur af landinu
📅 25.11.2026 👁️ 6
Sautján skipverjar í háska austur af landinu
Togarinn Skinney frá Skinney Þinganesi er skammt frá slysstaðnum. Jón Þórðarson stýrimaður á Skinney segir þá eiga um 40 mínútur eftir að slysstað. Fi...
Sjávarháski austur af landinu: Skipverjar í sjónum og skipið sokkið
📅 25.11.2026 👁️ 6
Sjávarháski austur af landinu: Skipverjar í sjónum og skipið sokkið
Georg segir að strax og neyðarkall hafi borist laust eftir klukkan 17 í dag. Þá hafi strax verið ljóst að atvikið væri alvarlegt. Skömmu eftir að útka...
Sjávarháski: Hafa verið í talstöðvasambandi við skipverja eftir að þeir lentu í sjónum
📅 25.11.2026 👁️ 4
Sjávarháski: Hafa verið í talstöðvasambandi við skipverja eftir að þeir lentu í sjónum
Upplýsingar berast héðan og þaðan um framvindu björgunaraðgerða. Fréttir hafa verið sagðar af því að allir sjómennirnir hafi verið hífðir upp úr sjónu...
Sjávarháski: Aðgerðum lokið – Ekki unnt að greina frá líðan skipverja
📅 25.11.2026 👁️ 4
Sjávarháski: Aðgerðum lokið – Ekki unnt að greina frá líðan skipverja
Þetta segir Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar. Annar aukafréttatími verður á miðnætti. Þyrla Landhelgisgæslunnar sem hífði áhöfn Jökuls úr ...
Mikill viðbúnaður á Egilsstöðum – Ekki unnt að greina frá líðan skipverja
📅 25.11.2026 👁️ 3
Mikill viðbúnaður á Egilsstöðum – Ekki unnt að greina frá líðan skipverja
Sænsku og norsku ríkisútvörpin, SVT og NRK, hafa sagt frá skipsskaðanum á vefmiðlum sínum.Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra skrifaði færslu...
Aðgerðum Landhelgisgæslunnar vegna skipsskaða lokið
📅 25.11.2026 👁️ 3
Aðgerðum Landhelgisgæslunnar vegna skipsskaða lokið
Í aukafréttatíma á miðnætti var rætt við Georg Lárusson forstjóra Landhelgisgæslunnar og fréttamann RÚV á vettvangi á Egilsstöðum.Áhöfn Jökuls ÞH var ...
Sautján skipverjar á íslensku fiskiskipi í sjávarháska – umfangsmiklar björgunaraðgerðir
📅 25.11.2026 👁️ 5
Sautján skipverjar á íslensku fiskiskipi í sjávarháska – umfangsmiklar björgunaraðgerðir
Sautján skipverjar á íslensku fiskiskipi í sjávarháska – umfangsmiklar björgunaraðgerðir Fréttin25. nóvember 2026InnlentLeave a Comment Sautján skipve...
Lýðskólinn kominn til að vera á Flateyri
📅 25.11.2026 👁️ 5
Lýðskólinn kominn til að vera á Flateyri
Lýðskólinn á Flateyri hefur eignast sitt eigið húsnæði.Hingað til hefur starfsemi skólans verið dreift í leiguhúsnæði um bæinn. Nú verður hún sameinuð...
Moment Nasa spacecraft hit asteroid - and what happened next
📅 25.11.2026 👁️ 4
Moment Nasa spacecraft hit asteroid - and what happened next
The crash was 'like something out of a disaster movie,' the BBC's science editor Rebecca Morelle says.
Afkoman batnar um þrjá milljarða milli umræðna
📅 25.11.2026 👁️ 4
Afkoman batnar um þrjá milljarða milli umræðna
Uppfærsla á fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar milli fyrstu og annarrar umræðu þýðir að meiri afgangur verður á rekstri ríkissjóðs en upphaflegt fru...
Telur allt að 200 milljónir vanta í uppgefinn kostnað við nýjan vef Veðurstofunnar
📅 25.11.2026 👁️ 5
Telur allt að 200 milljónir vanta í uppgefinn kostnað við nýjan vef Veðurstofunnar
Telur allt að 200 milljónir vanta í uppgefinn kostnað við nýjan vef Veðurstofunnar Fréttin25. nóvember 2026Fjármál, InnlentLeave a Comment Kostnaður v...
Fimm konur myrtar á hverri klukku­stund - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 6
Fimm konur myrtar á hverri klukku­stund - Vísir
Samkvæmt skýrslunni hefur tíðni kvennadrápa lækkað mun hægar en tíðni manndrápa á heimsvísu. Á árunum 2010 til 2025 lækkaði tíðni manndrápa nærri tvöf...
Þorgerður Katrín: Annaðhvort gunguskapur eða tækifærismennska að styðja ekki bókun 35
📅 25.11.2026 👁️ 5
Þorgerður Katrín: Annaðhvort gunguskapur eða tækifærismennska að styðja ekki bókun 35
Við Íslendingar getum ekki setið hjá á meðan Kanadamenn, Norðmenn og Bretar kanna leiðir til að tengjast ESB nánar. Verkefnin blasa við eftir nei-ið í...
Hlaupið á eftir konum í Bónus - „Staðreynd að íslam leyfir ekki aðlögun að kristni“
📅 25.11.2026 👁️ 6
Hlaupið á eftir konum í Bónus - „Staðreynd að íslam leyfir ekki aðlögun að kristni“
Oddviti Miðflokksins í Kópavogi tekur undir með forsætisráðherra Danmerkur um að verið sé að skipta þjóðum út með menningarlegum breytingum og vitnar ...
Biðja farþega flugs frá Íslandi afsökunar
📅 25.11.2026 👁️ 5
Biðja farþega flugs frá Íslandi afsökunar
Forsvarsmenn flugvallarins í Edinborg hafa beðið farþega flugs frá Keflavík afsökunar eftir mistök við móttöku. Farþegarnir voru sendir í gegnum vitla...
Fiskiskip í vanda austur af landinu - Sautján manns sagðir um borð og fjöldi skipa á leið á staðinn
📅 25.11.2026 👁️ 6
Fiskiskip í vanda austur af landinu - Sautján manns sagðir um borð og fjöldi skipa á leið á staðinn
Fiskiskip er í vanda statt austur af landinu og björgunaraðilar eru á leið á staðinn en litlar upplýsingar liggja fyrir um stöðuna en skipverjar eru þ...
Fjárhagsstaða Seltjarnarnesbæjar þung – Útsvarið hækkar
📅 25.11.2026 👁️ 7
Fjárhagsstaða Seltjarnarnesbæjar þung – Útsvarið hækkar
„Fjárhagsstaða bæjarins er þung og búin að vera þung undanfarin misseri, í þessu verðbólguumhverfi sem er búið að vera alltof lengi við lýði,“ segir Þ...
Kría tapaði 349 milljónum á einu ári – rekstrargjöld námu 44,6 milljónum á hvert stöðugildi
📅 25.11.2026 👁️ 5
Kría tapaði 349 milljónum á einu ári – rekstrargjöld námu 44,6 milljónum á hvert stöðugildi
Kría tapaði 349 milljónum á einu ári – rekstrargjöld námu 44,6 milljónum á hvert stöðugildi Fréttin25. nóvember 2026Fjármál, InnlentLeave a Comment Hr...
Watch: What we know about Trump's Thanksgiving tariffs
📅 25.11.2026 👁️ 4
Watch: What we know about Trump's Thanksgiving tariffs
Donald Trump is targeting China, the European Union and 12 other jurisdictions in a new round of tariffs.
Vél­menni gætu rutt snjó og gervi­greind spáð fyrir um hálku í Reykja­vík - Vísir
📅 25.11.2026 👁️ 6
Vél­menni gætu rutt snjó og gervi­greind spáð fyrir um hálku í Reykja­vík - Vísir
Þar var nefndur möguleiki á að prófa vélmenni við snjóhreinsun og hálkuvarnir á göngu- og hjólastígum og myndu vélmennin þá létta undir með starfsfólk...
Yfirvöld Kanaríeyja óska aðstoðar vegna fjölda flóttamanna
📅 25.11.2026 👁️ 6
Yfirvöld Kanaríeyja óska aðstoðar vegna fjölda flóttamanna
Tvö þúsund flóttamenn komu til eyjunnar El Hierro á bátum í gær. Leiðtogi Kanaríeyja skrifar í færslu á X að hann óski eftir fundi með forseta framkvæ...