Í kjölfarið tók við umfangsmikil aðgerð þar sem öllum sautján áhafnarmeðlimum skipsins sem sökk skömmu eftir útkallið var komið um borð í þyrluna TF-Gró og þeir fluttir til Egilsstaða þar sem ástand þeirra er nú metið. Hanna skrifaði í færslu á Facebook að „hugur okkar allra og bænir eru hjá skipverjunum og fjölskyldum þeirra“.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar, áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF og sjóbjörgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austfjörðum og Norðurlandi eystra tóku þátt í aðgerðunum. Að auki voru öll skip úti fyrir Austurlandi beðin um að halda á vettvang.