Aukafréttatími verður í sjónvarpi á miðnætti vegna björgunaraðgerða undan austanverðu landinu. Honum verður líka útvarpað á samtengdum rásum.
Skipið Jökull ÞH 299 sökk með 17 skipverja um borð síðdegis.
Sjóbjörgunarsveitir og Landhelgisgæslan voru kallaðar út eftir að neyðarkall barst frá skipinu. Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð. Aðgerðum Landhelgisgæslunnar er lokið.
Áhöfn skipsins var hífð um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flaug með hana til Egilsstaða. Í tilkynningu Landhelgisgæslunnar segir að ekki sé unnt að greina nánar frá líðan þeirra að svo stöddu eða veita frekari upplýsingar.
Streymi af útsendingunni er hægt að horfa á hér fyrir neðan.