Myndband af hópárás ungmenna á feðga fyrir utan Mjóddina í Breiðholti hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Lögreglan segir að svona mál séu ekki bundin við Mjóddina. Ofbeldismál af þessu tagi séu oftast á milli aðila sem þekkjast.
Greint var frá myndbandinu á vef Vísis. Þar sést hvernig hópur ungmenna veitist að feðgum þannig að þeir liggja eftir í blóði sínu, rétt hjá Mjóddinni.
Árásarmennirnir voru á aldrinum 15-20 ára og lögregla hefur haft afskipti af mörgum þeirra áður. Sonurinn fékk glerflösku í höfuðið og var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar.
Sigrún Kristín Jónasdóttir, lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir rannsókn á lokametrunum. Hún segir þekkt að myndir og myndbönd af líkamsárásum fari í dreifingu. „Það er alltaf verið að stofna nýjar og nýjar Instagram-síður þar sem þessi myndbönd koma inn og við erum bara á fullu að eltast við að láta loka þessum síðum.“
Lögreglan hefur aukið eftirlit við Mjóddina, sem Sigrún segir að hafi borið árangur. „Við erum búin að vera með virkt eftirlit þarna seinni partinn alltaf sérstaklega, það er bæði ekið framhjá og farið inn, bæði í göngugötuna í Mjódd og strætóstöðina, til þess að sporna við hópamyndun þarna.“ Eftirlitið sé í samstarfi við Reykjavíkurborg og Strætó.
Hópárásir og hópamyndanir ungmenna séu þó ekki bundnar við Mjóddina. Ungmennin komi alls staðar að af höfuðborgarsvæðinu. Sigrún segir að oftast þekkist gerendur og þolendur í ofbeldismálum af þessu tagi. „Þetta er mest á milli einhverra ákveðinna hópa,“ segir Sigrún. „Yfirleitt eru þetta ungmenni, þau eru búin að sammælast um að hittast þarna. Hvort sem það er í Mjóddinni eða annars staðar, þá eru flest átökin þannig á milli þessarra ungmenna, að þau eru búin að ákveða að hittast.“
En ætti fólk að hafa varann á sér eða forðast það að sækja þjónustu í Mjóddina? „Nei, ég sæki sjálf þjónustu í Mjóddina,“ segir Sigrún. „Það eru hópamyndanir þar eins og annars staðar en yfirleitt er fólk bara látið í friði.“