Meira en 200 nágrannar alþjóðaflugvallarins við Kaupmannahöfn mótmæltu fyrirhugaðri stækkun á flugvellinum fyrir utan ráðhúsið í Tårnby í dag. Einhverjir voru með mótmælaskilti og aðrir með andlitsgrímur eða heyrnarhlífar til að sýna áhyggjur sínar af loft- og hljóðmengun frá flugvellinum.
Þrátt fyrir mikla andstöðu íbúa ákvað meirihluti sveitarstjórnar Tårnby að veita leyfi fyrir stækkun flugvallarins, þar á meðal 15 nýjum flugvélastæðum.
Til stendur að stækka Kaupmannahafnarflugvöll umtalsvert. Áætlanir gera ráð fyrir að flugvöllurinn geti tekið á móti 55 milljónum farþega árlega að framkvæmdum loknum, samanborið við þær 34,5 milljónir farþega sem búist er við að fari um flugvöllinn í ár.
Íbúar í grennd við flugvöllinn mótmæla vegna þess að þeir óttast aukna mengun og hávaða. „Við viljum næturfrið,“ kölluðu mótmælendur.
Danskir fjölmiðlar hafa í gegnum tíðina fjallað um óánægju nágranna flugvallarins.
„Ef stór uppspretta mengunar er í sveitarfélagi virðist rökrétt að bæjarfulltrúar gangi fremstir í flokki við að krefjast verndar á heilsu íbúanna,“ hefur danska ríkisútvarpið DR eftir Louise Raaschou Petersen, nágranna flugvallarins og talskonu hópsins Borgarar gegn flugvallarmengun.
„Okkur finnst því að nærlýðræðið hafi brugðist, að við njótum ekki meiri stuðnings.“