Áður en Alþingi hefur samþykkt lög um Stafræna heilsu er heilbrigðisráðuneytið á lokametrum með umfangsmikið útboð vegna verkefnisins. Frestur til að skila tilboðum í hugbúnaðarsmíðina rennur út á morgun. Gagnrýni hefur komið frá bæði Landspítala og Persónuvernd við frumvarpsdrögin og netöryggissérfræðingar vara við vaxandi ógnarumhverfi. Árásargeta gervigreindar hafi tugfaldast á nokkrum vikum
Ríkið bíður nú eftir tilboðum í upplýsingatækniþjónustu fyrir Stafræna heilsu, en það er eitt stærsta verkefnið sem hið opinbera hefur ráðist í á sviði stafrænna lausna. Verkefnið miðar að því að innleiða stafrænar lausnir í heilbrigðisgeiranum og ná fram hagræðingu. Urgur er í stjórnendum hugbúnaðarfyrirtækja vegna útboðsins. Þeir óttast að ríkið nái til sín bestu starfskröftunum úr einkafyrirtækjum og hafa efasemdir um öryggi.
Óljóst hverjir munu hafa aðgang
Frumvarp til laga um Stafræna heilsu hefur ekki verið samþykkt á Alþingi.
Landspítali telur að frumvarpið veiti Stafrænni heilsu mjög víðtækt vald yfir heilbrigðiskerfum landsins án þess að nægilega sé skýrt hver beri ábyrgð þegar upp koma bilanir, öryggisatvik eða röskun á þjónustu og varar við of víðtækum heimildum til vinnslu viðkvæmra heilsufarsupplýsinga. Óljóst sé hverjir munu hafa aðgang að sjúkraskrám og hvernig eftirliti með þeim aðgangi verði háttað. Umsögn Persónuverndar um frumvarpið í samráðsgátt er af sama toga.
Syndis er íslenskt netöryggisfyrirtæki sem sérhæfir sig í að verja fyrirtæki og stofnanir gegn stafrænum ógnum. Anton Már Egilsson er forstjóri Syndis.
„Það er að sumu leyti bara styrkur hjá ríkinu að búa til stofnun sem tekur þessa þætti alvarlega og setur á einn stað. Ég held að það sé sterkur punktur í þessu. En það þarf svo að standa vel að því að keðjan við þessa hugbúnaðarþróun sé sterk alveg frá upphafi til enda,“ segir Anton.
Saklaus endabúnaður getur valdið stórskaða
Mikilvægt er að sá búnaður sem er notaður standist allar öryggiskröfur en í útboðslýsingu er höfðað til einstaklinga og bent á að hægt sé að smíða hugbúnaðinn í hjáverkum í eigin tölvum, með aðstoð gervigreindar.
„Það þyrfti þá að tryggja að sá búnaður sem er þar notaður og þeir ferlar sem er fylgt þar séu í lagi og séu líklega sterkari hjá stærri aðilum heldur en minni aðilum og einyrkjum,“ segir Anton.
Alvarlegar netárásir hafi margfaldast á síðustu vikum, oft í gegnum saklausan endabúnað, þ.e. tæki sem er ekki sjálft spillt eða undir stjórn árásaraðila, en getur samt verið notað eða misnotað í árásarferli. Þetta geta verið fartölvur, snjallúr, snjallsímar, öryggismyndavélar, fjarfundarbúnaður o.fl.
„Við höfum aldrei séð neitt þessu líkt áður,“ segir Anton. „Við erum að tala um allavega 15 földun hérna hjá okkur, bara í mjög alvarlegum atvikum og þá er ég ekki að tala um atvikin sem við erum hér að vakta allan sólarhringinn og bregðast við heldur atvikin þar sem við erum kölluð til og erum að setja töluvert af mannskap í. En ég hugsa að áhætta fyrirtækja sé miklu miklu hærri, kannski 20-40 föld frá því sem var áður í landslaginu með árásargetu gervigreindar,“ segir Anton.