„Ef Rússarnir halda áfram að þykjast minnislausir og dæla í okkur sagnfræði í stað þess að ná fram niðurstöðum í viðræðum, mun sá tími koma að það tekur við nýr pólitískur raunveruleiki í Bandaríkjunum,“ segir Selenskí í viðtali við Bloomberg sem birt var í dag.
Hann segir að Úkraínumenn myndu gera það sem þeir gætu til að ná fram friði, helst í gær, en á sama tíma myndu þeir kalla eftir áframhaldandi þrýstingi á Rússa. Friður sé ómögulegur án þrýstings.
„Ef Rússar vilja ekki binda enda á stríðið, þarf að þvinga þá til þess.“
Þá segir Selenskí að ef „einhver“, og á hann þar líklega við Trump, geti ekki fengið Rússa til að láta af stríðinu, verði einhver annar að gera það. Þar á hann við nýtt þing sem tekur við í janúar undir stjórn Demókrataflokksins.
Með Pútín í liði?
Í viðtalinu og í færslum á samfélagsmiðlum sem hann birti í kjölfarið segir Selenskí einnig að hann hafi miklar áhyggjur af því að á sama tíma og viðræður eigi sér stað virki Starshield-gervihnattanetið ekki með áreiðanlegum hætti.
It is deeply troubling when, amid all the discussions about how to end the war, Starshield works one moment and faces restrictions the next, while missiles for Patriot systems are not only becoming scarcer, but additional steps are also being taken that prevent deliveries. All this is happening while Putin's plan is focused on winter. All the intelligence on this is available, and our intelligence agencies are sharing the relevant information. Putin is counting on breaking Ukraine. Kyiv, Dnipro, Odesa, Kharkiv, Zaporizhzhia – these cities above all. Breaking us through a lack of protection and forcing Ukraine to withdraw from Donbas. This cannot be happening at the same time as the American side is not signing off on deliveries of anti-ballistic interceptors. Because America is putting itself in a very unpleasant situation. Politically, it looks as if it is on a course aligned with what Putin wants: forcing Ukraine into unfavorable compromises. But life and history extend far beyond friendship, business, or partnership with a single person who is an aggressor. Far beyond. From an interview with Bloomberg. (2/3)
— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) November 24, 2026
Þær takmarkanir sem hafa verið settar á netið hafa komið niður á vörnum Úkraínumanna gegn rússneskum sjálfsprengidrónum og á drónaárásum Úkraínumanna gegn birgðaneti Rússa í austurhluta Úkraínu.
Aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna gagnrýndi Úkraínumenn nýlega fyrir árásir þeirra á olíuinnviði og önnur skotmörk í Rússlandi, í ummælum sem varnarmálaráðherra Þýskalands sagði opinberlega að væru „frekar heimskuleg“.
Selenskí talaði einnig um skort Úkraínumanna á flugskeytum í loftvarnarkerfi sem geta verið notuð til að verjast rússneskum skotflaugum. Hann vísaði til þess að fregnir hafa borist af því að Pete Hegseth varnarmálaráðherra hafi staðið í vegi þess að slík flugskeyti, sem bakhjarlar Úkraínu í Evrópu hafa þegar greitt fyrir, verði afhent Úkraínumönnum.
„Pólitískt séð, lítur þetta út fyrir að þú viljir það sem Pútín vill. Að þvinga Úkraínu til að verða við erfiðum kröfum.“
Hernám Úkraínu enn markmið Pútíns
Í viðtalinu ræddi Selenskí einnig mögulega aðild Úkraínu að Atlantshafsbandalaginu og hélt því fram að ef einhver ætti að vilja að Úkraína gengi í bandalagið væri það Pútín. Forsetinn sagði að í rauninni myndi aðild að NATO fela það í sér að Úkraínumenn gætu ekki endurheimt tapað landsvæði með valdi án þess að missa alla sína bandamenn.
Hann vísaði til þess að Pútín hefði þvertekið fyrir tímabundið vopnahlé af því að Úkraínumenn myndu nota það til að styrkja varnir sínar. Selenskí sagði að það væri lygi. Pútín vildi ekki vopnahlé því hann vonaðist til þess að brjóta úkraínsku þjóðina á bak aftur í vetur.
„En hann hefur áhuga á öðru. Þegar Pútín segir: „Nei, allt annað en NATO,“ snýst það ekki um að við munum ráðast á þá. Það snýst um að tryggja að við rennum ekki úr hans greipum. Með öðrum orðum hefur Pútín óbreytt markmið: hernám Úkraínu.“
Rússar langmesta áherslu á að ná tökum á öllu Donbas-svæðinu svokallaða, sem myndað er af Lúhansk og Dónetskhéruðum. Rússar stjórna mestöllu Lúhansk og stærstum hluta Dónetsk en ekki svæði sem Úkraínumenn kalla „virkisbeltið“.
Það svæði er um fimmtungur Dónetsk, og inniheldur nokkrar mjög víggirtar borgir.
Falli þetta svæði yrði erfitt fyrir Úkraínumenn að koma upp nýjum varnarlínum á milli þess og Kænugarðs.