Keppnin fer fram í borginni San Juan í Puerto Rico þetta árið og fór undankeppni Miss Universe fram aðfaranótt mánudags.
Þetta er 75. keppnin sem haldin er undir nafninu Miss Universe og fer hún nú fram í José Miguel Agrelot-íþróttahöllinni í höfuðborginni San Juan. Fátima Bosch frá Mexíkó fór með sigur af hólmi í fyrra og krýnir eftirmann sinn í nótt.
Sigga Ósk, sem heitir fullu nafni Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, er 27 ára og kemur úr Garðabæ. Hún sigraði í Ungfrú Ísland í Gamla bíói þann 22. apríl og tók við titlinum af Guðrúnu Evu Hauksdóttur. Aníta Mist Davíðsdóttir varð í öðru sæti.
Sigga Ósk er söngvari og lagahöfundur. Hún keppti í Söngvakeppninni árin 2023 og 2024 og komst í úrslit í bæði skiptin. Þá er hún með B.Ed.-gráðu frá Háskóla Íslands.