Elvar Már Sigurðsson, þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni og sigmaður, segir sér hafa fundist óþægilegt hversu langan tíma tók að komast til bjargar áhöfninni af Jökli. Elvar segist ekki velta sér mikið upp úr tilfinningum heldur einbeiti hann sér að verkefninu sem við blasi.
„Við þjálfum okkur í þessu og hugsum um verkefnið og að klára það. Það kemst ekkert annað í hugann,“ segir Elvar. Aðstæðurnar hafi verið mjög krefjandi. Aðgerðirnar tóku langan tíma því áhöfnin var bundin saman þannig að byrja þurfti á að losa böndin til að geta híft þá einn og einn í senn. Einnig hafi ölduhæðin verið mikil.
Þjálfunin hafi þannig skipt sköpum. Tveir skipverjar reyndust nokkuð vel haldnir þegar þeir komust loks um borð eftir að hafa þurft að bíða í sjónum meðan þyrlan hringsólaði til að losa sig við eldsneyti.
„Þetta er draumastarfið mitt. Ég er stoltur af þessum skipverjum og stoltur af kollegum mínum hjá gæslunni,“ segir Elvar.
„Við vorum ekki að reikna með einu eða neinu heldur bara að fókusera á að mæta á svæðið og gera það sem við gátum. Við vorum meðvitaðir um að við næðum ekki öllum í einu en það var stefnan,“ segir Elvar.
Áhöfnin hafði búið sig undir að þurfa jafnvel að fara tvær ferðir. Hann hefði fyrst og fremst einbeitt sér að því að fara strax út í dyrnar og hefja sitt verk.
„Ég veit að ég þekki ekki aðstæðurnar. Við vitum ekki hvort þeir eru í mörgum eða fáum hópum eða hvort við þurfum að eyða miklum tíma í leit. Þessir skipverjar eiga heiður skilinn fyrir að halda sig í tveimur hópum.“
Hér fyrir neðan má sjá viðtalið við Elvar í heild sinni: