Eggert Ellertsson lést í sjóslysinu á miðvikudag þegar Jökull ÞH299 sökk á Héraðsdjúpi um sextíu sjómílur austur af Glettingi. Eggert var 41 árs, fæddur 1985. Móðir hans, Elín Halla Þórhallsdóttir, minnist sonar síns með færslu á Facebook: „Það er með djúpri sorg og þungum hjörtum sem við tilkynntum að okkar ástkæri Eggert lést í sjóslysinu í gær þegar Jökull ÞH 299 fórst,“ segir í færslunni.
Minnist sonar síns sem lést í sjóslysinu