Öflugur stormur skók Bandaríkin í gær og truflaði þakkargjörðarhátíð milljóna Bandaríkjamanna.
Þetta er einn mesti ferðatími ársins í landinu en hættulegar aðstæður sköpuðust í umferðinni vegna mikillar rigningar og hvassviðris sem gekk yfir mið- og austurhluta Bandaríkjanna.
Meira en 900 þúsund heimili og fyrirtæki urðu rafmagnslaus og ríkin Pennsylvanía, Maryland og Virginía urðu einna verst úti.
Risablöðrur verða að bíða
Á flugvöllum í Bandaríkjunum var tæplega 400 flugferðum aflýst og meira en 2000 var seinkað, flestum í austurhluta landsins.
Þá var hinni sögufrægu skrúðgöngu Macy's í New York frestað vegna veðursins. Eitt helsta einkenni skrúðgöngunnar eru gríðarstórar blöðrur í allra kvikinda líki. Skrúðgangan er afar vinsæl en á hverju ári koma milljónir manna saman til að fylgjast með henni.
Macy's-skrúðgöngunni hefur hvorki verið aflýst né frestað í áttatíu ár, eða ekki síðan í seinni heimsstyrjöldinni. Þá var skrúðgöngunni aflýst þrjú ár í röð vegna stríðsins.