Steve Carter hafði ekki hugmynd um að hans væri saknað. Hann hafði lifað ósköp venjulegu lífi í Bandaríkjunum í 33 ár þegar hann rakst á mynd á vefsíðu þar sem lýst var eftir týndum börnum. Andlitið á myndinni var óhugnanlega kunnuglegt og grunur hans reyndist réttur – þarna var lýst eftir honum sjálfum.Steve rifjar upp þessa ótrúlegu lífsreynslu í nýlegu viðtali við hlaðvarpið What It Was Like sem vakið hefur talsverða athygli á samfélagsmiðlum. Fjallað er um sögu hans á vef VT.
Steve lifði ósköp venjulegu lífi – Dag einn komst hann að því að hans hafði verið saknað í 33 ár