Eyþór Arnalds hefur verið á ferð og flugi í íslensku tónlistarlífi í áratugi og um þessar mundir er hann aftur kominn á svið með tveimur hljómsveitum sem skipa stóran sess í tónlistarsögu landsins, Tappa Tíkarrassi og Todmobile. Með þeirri fyrrnefndu rifjar hann upp æskuárin og upphafið að íslensku pönkbylgjunni, en með þeirri síðarnefndu heldur hann áfram að kanna nýjar víddir tónlistarinnar. Þótt leiðin hafi legið í gegnum fjölmörg önnur verkefni og jafnvel tæknigeirann hefur tónlistin alltaf togað í hann.
Tónlistin sem sleppir ekki takinu: „Eitthvað sem maður leitar aftur í, svona eins og laxinn sem kemur í ána sína og kemur heim“