Enginn oddviti í borginni vill hlutlausan skóla fyrir börn

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Það var merkilegt að heyra- enginn oddviti, sem mætti í stjórnmálaspjall hjá Sýn í gær vill hlutlausan skóla fyrir börn. Þeim finnst sjálfsagt að innræting eigi sér stað í skólastofunni með táknum og fánum. Annarra manna börnum. Okkar borg, sem er valkostur í Reykjavík, er eini flokkurinn sem vill hlutlausan skóla. Miðflokkurinn svona bæði og. Aðrir vilja ekki hlutlausa leik- og grunnskóla.
Að flagga fána eða hafa annars konar tákn er ekki hlutleysi. Það er ekki samúð. Það er ekki samtaða. Það er áróður. Prófið að setja fána Sjálfstæðisflokksins í staðinn, myndu oddvitarnir sætta sig við það. Fáni, hvort sem það er regnbogafáni eða trans fáni, er áróður, innræting barna og á ekki heima í kennslustofu, í skólanum eða við skóla.
Foreldrar eiga rétt á að skóli sé hlutlaust svæði og að börn þeirra geti verið þar án þess að innræting eða áróður á sér stað fyrir ákveðnum málefnum.

Drenglyndi
Á heimasíðu Drenglyndis er frétt um rannsókn sem finnskir fræðimenn birtu. Það er margt áhugavert sem kemur fram í rannsókninni- en ekkert sem kemur á óvart.
Hér á landi hafa menn bent á versnandi geðheilsu barna og ungmenna og Finnar engin undantekning.
Á heimasíðu Drenglyndis má lesa um rannsóknina: Ný finnsk rannsókn finnur engan ávinning af ,,kynskipti”-meðferðum fyrir börn | gfhghg
Hvert einasta foreldri, hver einasti kennari, hver stjórnmálamaður og aðrir þeir sem vinna með börn ættu að kynna sér rannsóknina. Í henni segir m.a.
„Ungmennin sem óskuðu aðstoðar á kynheilsugæslu árið 2010 eða síðar, glímdu við mun verri andlega heilsu en þau sem komu áður, að sögn rannsakenda.
Höfundar rannsóknarinnar bentu á að niðurstöður þeirra styrktu þá kenningu, sem er illa séð meðal stuðningsmanna á inngripum fyrir börn, að hjá sumum unglingum gætu ónotin í eigin líkama, stafað af dýpri sálfræðilegum vandamálum og að eigin skilgreining þeirra á að vera trans geti verið óheppilegt bjargráð.
Rannsakendurnir komust að þeirri niðurstöðu, að hjá sumum ungmennum sem mæta á kynheilsugæslu geti ónotin í eigin líkama „verið vegna undirliggjandi geðheilbrigðisvandamála."
Þeir halda áfram: „Áberandi fjölgun þeirra sem hafa samband við kynheilsugæslu og aukin geðrænn vandi meðal þeirra frá 2010, gæti einnig bent til þess að fyrir suma geti geðheilbrigðisvandamál komið fram sem áhyggjur tengdar kynvitund."
Rannsóknina má nálgast hér Psychiatric Morbidity Among Adolescents and Young Adults Who Contacted Specialised Gender Identity Services in Finland in 1996–2019: A Register Study - Ruuska - Acta Paediatrica - Wiley Online Library