Flugþróunarsjóður var settur á laggirnar árið 2016 til þess að styðja við verkefni tengd millilandaflugi á landsbyggðinni, sérstaklega um Egilsstaði og Akureyri. Ferðaþjónusta á landsbyggðinni verður fyrir miklu höggi ef draga á úr fjárframlögum til sjóðsins, segir formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra.
Í fyrra fékk flugþróunarsjóður 100 milljóna króna viðbótarfjármagn til þess að aðstoða landsbyggðarflugvelli við að koma á reglulegu millilandaflugi um fleiri flugvelli en í Keflavík. Á fundum samtaka sveitarfélaga á landsbyggðinni og atvinnuveganefndar var lögð mikil áhersla á að festa þessi framlög til nokkurra ára, helst fimm ára, eins og gert er ráð fyrir á Keflavíkurflugvelli og menn voru bjartsýnir á að það tækist. Nú er hins vegar komið í ljós að svo verður ekki.
„Við erum mjög hrædd ef þetta dettur út, þá gæti bara orðið mikill skellur fyrir millilandaflug. Við erum að krefjast þess að fá fundi með ráðherrum og fleira til þess að ræða þessi mál. Þetta kemur frekar óvænt ég verð að viðurkenna það miðað við fundi sem ég sat í fyrra,“ segir Heimir Örn Árnason, formaður stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi eystra.
EasyJet flýgur reglulega á veturna
Mikil vinna hefur verið lögð í að festa millilandaflug frá Akureyrarflugvelli í sessi. EasyJet hefur síðustu ár flogið beint til Akureyrar yfir vetrartímann og mikil innviðauppbygging hefur verið á Norðurlandi eystra til þess að mæta aukinni heilsársferðamennsku.
„Þetta millilandaflug er að festa sig í sessi hérna. Þetta er ótrúlega mikilvægt fyrir lífsgæði á öllu svæðinu í kringum Akureyri. Þetta er svo mikilvægt til þess að dreifa álaginu á ferðamennskunni á landinu. Það er búið að byggja upp fyrir norðan. Við erum búnir að sjá aukningu, það eru allir voðalega jákvæðir. Þetta yrði smá högg á ferðaþjónustuna á svæðinu, mikið högg,“ segir Heimir. Hann segir einnig framlögin lífsnauðsynleg fyrir flugið á landsbyggðinni og nefnir í því samhengi að þessar hundrað milljónir séu fljótar að fara vegna verðmunar á eldsneyti á Akureyri og Keflavík: „Þetta eiginlega fer allt með eldsneytisverðinu sem er hærra á Akureyri en Keflavík.“