Fern dýra- og náttúruverndarsamtök hafa krafið Matvælastofnun um að stöðva hvalveiðar Hvals hf. tafarlaust og hefji ítarlega rannsókn á meintum brotum á lögum um velferð dýra.
Í yfirlýsingu frá Dýraverndarsambandi Íslands, Hvalavinum, Náttúruverndarsamtökum Íslands og Samtökum um dýravelferð segir að krafan byggi á sex eftirlitsskýrslum MAST frá síðustu viku, dagsettum 22.-26. júní 2026, sem samtökin fengu afhent á grundvelli upplýsingalaga.
„Að mati samtakanna benda skýrslurnar til ítrekaðra brota á lögum nr. 55/2013 um velferð dýra, sem banna að dýrum sé valdið ónauðsynlegri þjáningu og kveða á um að aflífun skuli fara fram með skjótum og sársaukalausum hætti,“ segir í yfirlýsingunni.
Samtökin nefna 31 mínútu dauðastríðs langreyðar sem skotin var fjórum sinnum, endurtekin atvik þar sem þurfti fleiri en eitt skot til að aflífa dýr og ófullnægjandi eftirlitsgagna.
Af þessum sökum krefjist samtökin þess að MAST stöðvi tafarlaust frekari hvalveiðar á grundvelli núgildiandi veiðileyfis Hvals hf., eða eftir atvikum beini tilmælum til ráðuneytis um að fella leyfið úr gildi á meðan rannsókn fer fram. Samtökin vísa í fordæmi um stöðvun MAST á veiðum Hvals í september 2023.