Vegavinna verður á Hafnarfjarðarvegi, undir brúnni við Hamraborg í Kópavogi, frá kl. 22:00 til 06:00 fram til mánudagsins 20. júlí.
Í tilkynningu sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu birti á Facebook í gærkvöld kemur fram að lokað verður til skiptis til norðurs og suðurs, en hjáleiðir verða merktar á staðnum.
Ekki verður lokað alla dagana þar sem verkið er háð veðri.