Nokkur íbúahverfi borgarinnar voru rýmd en árásin skall á nokkrum klukkustundum eftir að Volodómír Selenskí Úkraínuforseti hafði varað landsmenn sína við því að von væri á stórri árás frá Rússum. Börn eru sögð á meðal hinna látnu og yfirmaður hersins í Kænugarði Tymur Tkachenko segir að enn og aftur beini Rússar sprengjum sínum að óbreyttum borgurum og borgaralegum innviðum Úkraínu.
Eldar loga víða um borgina nú í morgunsárið og meðal annars þurfti að slökkva eld sem logaði í stóru hóteli í miðbæ höfuðborgarinnar. Árásin er sú fyrsta sem Rússar gera á Kænugarð af þessari stærðargráðu í um hálfan mánuð.