Þúsundir mótmælenda hafa komið saman þar sem landsfundur þýska stjórnmálaflokksins Alternative für Deutschland (AfD) verður í dag. Fólkið er á móti stefnu flokksins og ætlar að freista þess að koma í veg fyrir landsfundinn.
Flokkurinn heldur landsfund í borginni Erfurt í dag. Þrátt fyrir að hann sé umdeildur hefur fylgið farið vaxandi. Þúsundir mótmælenda hafa komið sér fyrir við staðinn þar sem landsfundurinn er haldinn. Þeir hafa lokað vegum og truflað almenningssamgöngur. Flestir gestir landsfundarins komust þó þangað á réttum tíma. Lögregla telur að um 20.000 mótmælendur séu í borginni.
Meðal mótmælenda er Lena Raupach, talsmaður samtaka gegn fasisma. Hún segir fólk hafa komið saman því það vilji koma í veg fyrir að flokkurinn geti haldið landsfundinn. Hún sakar AfD um að stefna að því að vísa útlendingum úr landi í stórum stíl og valda ótta á götum úti.
Andstæðingar flokksins hafa einnig gagnrýnt að landsfundurinn sé haldinn í dag, sama dag og öld er liðin frá fundi nasistaflokksins í Weimar þar sem völd Hitlers yfir hreyfingunni voru fest í sessi. Flokkurinn hefur hafnað ásökunum um að eitthvað megi lesa í tímasetningu landsfundarins.