Utanríkispólitík stórvelda er meira hagsmunadrifin nú en verið hefur, minni áhersla er á mannréttindi og lýðræði og prinsipp um lýðræði, frelsi, fjölbreytni, friðhelgi landamæra og sjálfsákvörðunarréttur þjóða á undir högg að sækja. Evrópa hefur skorið sig úr og lagt áherslu á þessi grunngildi. Það var styrkur Dana og Grænlendinga þegar Bandaríkin ásældust Grænland að eiga fullan stuðning Evrópusambandsins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir: Samstaða og stuðningur Evrópusambandsins var styrkur Dana og Grænlendinga