Einn þeirra sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna stórfellds kókaínsmygls með flutningaskipinu Koznitza heitir Lúther Ólason. Þetta herma heimildir fréttastofu.
Hann var dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir meiriháttar skattalagabrot í héraðsdómi fyrir tveimur árum og gert að greiða 55 milljónir króna í sekt. Landsréttur mildaði dóminn hins vegar og gerði honum að greiða 51 milljón í sekt innan fjögurra vikna ella að sæta fangelsi í 360 daga.
Fréttastofa greindi frá því fyrr í vikunni að Lárus Freyr Einarsson væri einn þeirra níu sem væru í haldi vegna málsins. Hann hlaut fjórtán mánaða fangelsisdóm í Danmörku árið 2011 fyrir morð.
106 kíló af kókaíni fundust um borð í Koznitza og er það stærsta kókaínsmygl Íslandssögunnar.
Auk Lúthers og Lárusar er að minnsta kosti einn Íslendingur í gæsluvarðhaldi auk sex útlendinga, sem eru meðal annars Brasilíumenn og Rúmeni.