Björgunarsveitir, lögregla, sjúkraflutningar og þyrla Landhelgisgæslunnar hafa öll verið ræst út og er viðbragð því töluvert.
Í samtali við fréttastofu staðfesti Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, að óskað hafi verið eftir að þyrlusveitin myndi sinna sjúkraflutningi vegna veikinda á Fimmvörðuhálsi. Kallið barst fyrir hádegi og var þyrlan komin á staðinn þegar fréttastofa ræddi við Ásgeir.