Í aukafréttatíma á miðnætti var rætt við Georg Lárusson forstjóra Landhelgisgæslunnar og fréttamann RÚV á vettvangi á Egilsstöðum.
Áhöfn Jökuls ÞH var hífð um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar og flutt til Egilsstaða. Gæslan segir að ekki verði upplýst um líðan skipverja að svo stöddu.
Umfangsmiklum aðgerðum er nú lokið og ekki að vænta fleiri upplýsinga frá Landhelgisgæslunni í nótt.
Áfram verður fylgst með stöðu mála á ruv.is.
Sænsku og norsku ríkisútvörpin, SVT og NRK, hafa sagt frá skipsskaðanum á vefmiðlum sínum.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra skrifaði færslu á Facebook um sjóslysið fyrir um klukkustund síðan.
„Síðustu klukkutímana hefur þjóðin beðið á milli vonar og ótta eftir fréttum af skipverjunum 17 sem lentu í sjónum þegar Jökull ÞH 299 sökk úti fyrir Austurlandi síðdegis í dag,“ skrifar Hanna Katrín.
„Hugur okkar allra og bænir eru hjá skipverjunum og fjölskyldum þeirra.“
Samkvæmt heimildum fréttastofu er aðgerðum á Egilsstaðaflugvelli lokið. Skipverjar voru fluttir til aðhlynningar á Heilsugæsluna á Egilsstöðum. Sjúkraflugvélar hafa ekki farið í loftið frá Egilsstaðaflugvelli.
Georg telur að frekari upplýsingar verði veittar fyrir hádegi á morgun.
Georg segir næstu skref að meta ástand skipverja. Það sé væntanlega heilsugæslan á Austurlandi geri það.
Hann segir ekki bara að bera að þakka öllum félögum slysavarnarfélagsins Landsbjargar heldur einnig sjómönnum sem voru nálægt Jökli.
„Þarna var Barði og þarna var Svanurinn og það var mikill styrkur að hafa þá og mjög góðar upplýsingar sem þeir gátu veitt varðandi leitina að mönnunum.“
Georg segir þyrluna meðal annars hafa þurft að fljúga frá til að létta vélina til að geta komið öllum um borð.
„Þetta er í raun afrek sem að þeir hafa unnið sem að þessu komu.“
„Þetta er náttúrulega eins langt og hægt er að hugsa sér og veðrið ekki upp á sitt besta.“
Hann segist hafa talað við flugstjóra sem hafi lýst aðstæðum sem afar krefjandi.
Þetta segir Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar.
Annar aukafréttatími verður á miðnætti.
Þyrla Landhelgisgæslunnar sem hífði áhöfn Jökuls úr sjónum er lent á Egilsstöðum. Ekki fást upplýsingar um líðan skipverja.
Á Egilsstöðum voru sjúkraflugvélar og sjúkrabílar í biðstöðu.
Aðgerðum Landhelgisgæslunnar er lokið. Áhöfn skipsins var hífð um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar og mun þyrlan fljúga með hana til Egilsstaða.
Í tilkynningu Landhelgisgæslunnar segir að ekki sé unnt að greina nánar frá líðan þeirra að svo stöddu eða veita frekari upplýsingar
Aukafréttatími verður í sjónvarpi á miðnætti.
Upplýsingar berast héðan og þaðan um framvindu björgunaraðgerða. Fréttir hafa verið sagðar af því að allir sjómennirnir hafi verið hífðir upp úr sjónum en það hefur ekki fengist staðfest af samhæfingarstöð almannavarna.
„Hugur minn er hjá sjómönnunum fyrir austan, ástvinum þeirra og öllu því góða og hugrakka fólki sem vinnur nú að björgun þeirra. Á slíkum stundum slær hjarta þjóðarinnar í sama takti,“ skrifar Halla Tómasdóttir forseti Íslands á Facebook.
„Megi allir komast heilir heim.“
Í nýrri tilkynningu Landhelgisgæslunnar segir að aðgerðir þyrlusveitar standi enn yfir.
Tilkynning Lanhelgisgæslunnar í heild:
Aðgerðir þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar standa enn yfir á vettvangi og von er á frekari upplýsingum klukkan 23:00
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í Skógarhlíð ásamt forsætisráðherra og dómsmálaráðherra.
„Við náðum sambandi við áhafnarmeðlimi og erum enn í sambandi við þá,“ segir Georg.
Björgunaraðilar hafi verið í slitrótu sambandi við skipverja sem var í keðju með öðrum og hafði gripið með sér talstöð.
„Þannig við erum vongóðir með það að þetta fari á sem bestan máta.
Hann segir of snemmt að segja hvað hafi komið fyrir.
Spurður hvort búið sé að bjarga einhverjum segir Georg erfitt að segja til um það. Aðgerðir séu yfirstandandi.
„Við vonum að hún skili árangri.“
Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar er í Skógarhlíð í Reykjavík og svæðisstjórn á Austurlandi á Egilsstöðum. Björgunarbátar björgunarsveita fóru frá Neskaupstað, Vopnafirði og Raufarhöfn, björgunarbáturinn frá Raufarhöfn snéri síðar við.
Hjalti Stefánsson tökumaður tók þessar myndir við björgunarsveitarhúsið í Neskaupstað.
Aðspurður segist Georg vissulega hafa áhyggjur af versnandi veðri á svæðinu. Hann bindi þó vonir við að hlutirnir fari að ganga hratt fyrir sig eins og staðan er núna. Það hafi tekið langan tíma að komast á vettvang.
Jökull ÞH299 er 962 brúttótonna línu- og netaskip smíðað í Noregi árið 1996 og hefur heimahöfn á Raufarhöfn. GPG Seafood á Húsavík keypti skipið í desember árið 2020, áður var það gert út við Grænland undir nafninu Nanoq.
Georg staðfestir að aðeins ein þyrla sé til taks.
„Við erum með öfluga áhöfn og þeir eru komnir langt út fyrir öll mörk en þeir ætla sér að bjarga þessum mönnum.“
Flugvélin TF-SIF var fyrst á vettvang en Georg segir að áhöfn flugvélarinnar hafi reynt að kasta út gúmmíbátum til skipverjanna. Það hafi þó ekki borið árangur.
Georg segir að strax og neyðarkall hafi borist laust eftir klukkan 17 í dag. Þá hafi strax verið ljóst að atvikið væri alvarlegt. Skömmu eftir að útkallið barst hafi skipverjar yfirgefið skipið.
Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar segir aðstæður á vettvangi erfiðar. Það sé dimmt, mikil ölduhæð og vindur. Mikil áhætta fylgi aðgerðunum sem gangi þó vel.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra eru í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar almannavarna í Skógarhlíð.
Tvær sjúkraflugvélar frá Akureyri lentu á Egilsstöðum í kvöld, samkvæmt upplýsingum Gunnars Rúnars Ólafssonar, slökkviliðsstjóra á Akureyri. Líklegt þykir að þyrla Landhelgisgæslunnar flytji einhverja úr áhöfninni þangað.
Samkvæmt heimildum fréttastofu sökk skipið og allir skipverjarnir lentu í sjónum. Þyrla Landhelgisgæslunnar er komin á slysstað og björgunaraðgerðir eru hafnar.
Áhöfn er búin að yfirgefa skipið. Landhelgisgæslan var í sambandi við skipverja og bað þá um að klæðast björgunargöllum. Skömmu síðar yfirgáfu þeir skipið. Eftirlitsflugvél er á staðnum og fiskiskip sömuleiðis. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslu.
Tilkynning í heild sinni:
Skipstjóri íslensks fiskiskips hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar laust eftir klukkan 17 og lýsti yfir neyðarástandi.
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út ásamt áhöfn eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF og sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austfjörðum og Norðurlandi eystra. Að auki voru öll skip úti fyrir Austurlandi beðin um að halda á vettvang.
Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar báðu áhöfn skipsins um að klæðast björgunargöllum og skömmu síðar fékk Landhelgisgæslan upplýsingar um að áhöfnin væri að yfirgefa skipið.
Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð sem og aðgerðarstjórnir á Norðurlandi eystra og Austurlandi.
Eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar kom á vettvang um klukkan átta og laust eftir klukkan níu kom þyrla Landhelgisgæslunnar á staðinn sem og fiskiskip sem beðin voru að halda á vettvang. Aðgerðir standa yfir.
Aukafréttatími verður í sjónvarpi klukkan 22:00. Honum verður líka útvarpað á samtengdum rásum.
Landhelgisgæslan verst allra fregna af slysinu en von er á tilkynningu á næstu mínútum.
Togarinn Skinney frá Skinney Þinganesi er skammt frá slysstaðnum. Jón Þórðarson stýrimaður á Skinney segir þá eiga um 40 mínútur eftir að slysstað. Fiskiskipin Svanur og Harðbakur eiga styttra eftir og Svanur farinn að slá af segir Jón. Þá sé flugvél Landhelgisgæslunnar kominn á sömu slóðir og sveimi yfir.
Hann segir aðstæður á vettvangi ágætar, mikið hafi lægt það sé tunglbjart og hálfskýjað.
Eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, er komin á slysstað og stutt er í þyrluna TF-GRÓ. Björgunarskipið Hafbjörg frá Neskaupsstað er næst af þeim skipum sem eru á leið á staðinn.
Á Marine Traffic má sjá fiskiskip sem eru á leið að staðsetningu Jökuls ÞH 299. Það eru til dæmis togararnir Harðbakur, Skinney og Svanur. Af Marine Traffic að dæma er útlit fyrir að skipin komi á vettvang á undan björgunarskipum.
Aðstæður á slysstað eru krefjandi, veður er slæmt og ölduhæð er mikil. Erfitt er að koma björgum á staðinn. Veður á að fara versnandi með kvöldinu.
Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands er talsverð ölduhæð á slysstað, átta til níu metrar. Hvasst, þrettán til tuttugu metrar á sekúndu og úrkoma á köflum.
Sjóbjörgunarsveitir, þyrlur og flugvél Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út eftir að neyðarkallið barst. Þá eru þrjú björgunarskip á leið á vettvang: Hafbjörg frá Neskaupstað, Sveinbjörn frá Vopnafirði og Gunnbjörg frá Raufarhöfn.
Neyðarkall barst frá fiskiskipinu Jökli ÞH299 á sjötta tímanum. Bjargir eru á leið á staðinn. Við munum greina frá því helsta hér í lifandi fréttavakt.