Andy Taylor, gítarleikari hljómsveitarinnar Duran Duran, er látinn, 65 ára að aldri. Taylor greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli árið 2018. Hann greindi fyrst frá krabbameininu árið 2022 þegar hljómsveitin var vígð inn í Frægðarhöll rokksins. Taylor lætur eftir sig eiginkonu og fjögur börn.
Duran Duran var stofnuð árið 1978 og Taylor gekk í hljómsveitina tveimur árum síðar, árið 1980. Þá var Taylor nítján ára gamall. Ári síðar vakti hljómsveitin athygli fyrir smellinn Planet Earth og árið 1982 skaust hún upp á stjörnuhimininn með laginu Girls on Film sem komst á topp fimm listann í Bretlandi.
Seinna áttu fræg lög þeirra á borð við Hungry Like the Wolf, Rio og Ordinary World eftir að óma í stofum víða um heim. Þá var Duran Duran ekki síst þekkt fyrir vinsæl og framúrstefnuleg tónlistarmyndbönd sem stuðluðu enn frekar að dreifingu laga þeirra í upphafi MTV-bylgjunnar.
Þess má geta að þrír af fimm meðlimum Duran Duran bera eftirnafnið Taylor en enginn þeirra er þó skyldur. Hinir eru gítar- og bassaleikarinn John Taylor og trommuleikarinn Roger Taylor.