Börn bandarískra hjóna, sem fundust bæði látin eftir að hafa gist hjá vinum í kjölfar afmælisveislu í febrúar síðastliðnum, hafa höfðað skaðabótamál vegna dauða foreldra sinna.Hjónin John „Jay“ Ruskey, 53 ára, og Kristen Ruskey, 49 ára, voru þriggja barna foreldrar og ráku saman landbúnaðarfyrirtækið Good Land Organics í Kaliforníu. Þau sóttu afmælisveislu í bænum Cambria þann 7. febrúar síðastliðinn þar sem á milli 50 og 60 gestir voru saman komnir.
Afmælisveisla endaði með ólýsanlegum harmleik – Þrjú börn misstu foreldra sína