Alls greiddu 257 atkvæði með því að yfirgefa Bretland, eða 94% þeirra sem tóku þátt, en 16 greiddu atkvæði á móti samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins. Einn seðill var ógildur. Niðurstaðan lá fyrir innan við hálftíma eftir að talning hófst. Til að fagna „sjálfstæðinu“ afhjúpuðu íbúar fána þorpsins, með tríl á „Suffolk-bláum“ grunni. Fuglinn er að sögn nefndur Andy Barnham, í höfuðið á Andy Burnham forsætisráðherra.
Allt að 930 menn í herstöðinni
Breska innanríkisráðuneytið hefur áform uppi um að nota RAF Barnham, gamall herflugvöllur, til að hýsa hælisleitendur. Samkvæmt ráðuneytinu gætu um 930 karlmenn verið vistaðir þar. Fréttir af áformunum vöktu mikla óánægju íbúða sem hafa mótmælt þeim harkalega.
Ráðuneytið segir að herstöðvar séu ódýrari og einfaldari í rekstri en hótel, sem almenningur vilji ekki sjá notuð. Eftirlitsmyndavélar og öryggisvarsla verði á staðnum allan sólarhringinn. Skipulagsvinnan sé á frumstigi og kannanir á svæðinu rétt að hefjast, en þær gætu leitt í ljós að stöðin henti ekki.
RAF Barnham var tekin í notkun 1939. Á sjötta og sjöunda áratugnum voru þar geymd kjarnavopn og samkvæmt BBC voru þau síðustu „líklega fjarlægð í apríl 1963“. Hluti stöðvarinnar var seldur á sjöunda áratugnum og er nú iðnaðarsvæði, en varnarmálaráðuneytið á enn hluta landsins. Síðast var stöðin notuð fyrir þjálfun lögreglu.
„Enginn hefur haft samband við okkur“
Íbúar sem BBC ræddi við segja að ráðuneytið hafi ekki haft neitt samráð við sig.
„Enginn hefur haft samband við okkur, þannig að þegar þeir segjast hafa samráð þá gera þeir það ekki,“ er haft eftir Stephanie Donaldson sem býr beint á móti stöðinni.
Hún segist hafa áhyggjur af velferð og öryggi barna. Hún viðurkennir að atkvæðagreiðslan sé táknræn, hún eigi að vekja athygli á óánægju í þorpinu.
„Ríkisstjórnin hefur ekkert haft samráð við okkur og mun bara keyra þetta í gegn án samráðs við samfélagið,“ er haft eftir Billy Burton, sem hefur búið í Barnham í meira en tuttugu ár.
Þingmaður kjördæmisins, Peter Prinsley úr Verkamannaflokknum, segist ekki hissa á niðurstöðunni. Hann segist hafa fengið fullvissu um að engin ákvörðun hafi verið tekin og engin skipulagsbreyting lögð fram. Hann hitti innflytjendaráðherra í þessari viku og ætli að koma andstöðu íbúa á framfæri.
Zia Yusuf, talsmaður Endurbótaflokksins í innflytjendamálum, kom til þorpsins í dag. Hann sagði niðurstöðuna „skilgreininguna á grasrótarhreyfingu fólksins“ og lýsti henni sem merki um hversu óstarfhæf stjórnmálin væru orðin.
Annað þorpið í vetur
Barnham er annað þorpið sem heldur slíka atkvæðagreiðslu. Í september samþykktu íbúar Piddington í Oxford-skíri að yfirgefa Bretland til að mótmæla áformum um að vista allt að 1.256 karlkyns hælisleitendur í herstöðinni í Bicester. Þar greiddu 285 atkvæði með, eða 91,3% af 312, en 26 á móti. Einn seðill var ógildur.
Engar lagaheimildir eru til fyrir því að þorp lýsi yfir sjálfstæði frá Bretlandi, og niðurstaðan augljóslega ekki bindandi. Fréttastjóri stjórnmálaumfjöllunar breska ríkisútvarpsins segir líklegt að ráðherrar hunsi atkvæðagreiðsluna, en skilaboðin séu þau að samfélagið vilji að á það sé hlustað.