Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseti Brasilíu, liggur á gjörgæslu vegna hindrunar í meltingarvegi. Bolsonaro er 71 árs gamall.
Í tilkynningu frá DF Star spítalanum í höfuðborginni Brasilíu segir að ástand hans sé stöðugt, hann sé með meðvitund og andi sjálfstætt.
Bolsonaro var í fyrra dæmdur í 27 ára fangelsi fyrir að skipuleggja valdarán eftir að hafa tapað forsetakosningum 2022. Hann dvaldi fyrst um sinn í fangelsi en var færður í stofufangelsi í mars vegna heilsuvandamála.