Krónan opnaði nýja matvöruverslun á Höfn í Hornafirði í morgun við góðar undirtektir heimamanna. Margir Hornfirðingar voru mættir snemma dags til að kynna sér nýju verslunina og var líf og fjör í búðinni frá fyrstu stundu.Verslunin er staðsett í nýju, 1.200 fermetra húsnæði að Hafnarbraut 60A, á svæðinu við gömlu mjólkurstöðina. Hún er sú 27. í röðinni hjá Krónunni og sú tíunda utan höfuðborgarsvæðisins. Með opnuninni verða til um 30 ný störf á svæðinu, um leið og Snjallverslun er komin í fulla virkni.
Krónan opnaði á Höfn í morgun